Júní
Fjöruferð í Bljábjörg. 31 maí 2008
Fjöruferð í Bljábjörg. 31 maí 2008
Fjöruferð í Bljábjörg. 31 maí 2008
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

08.06.2008 Júní

Hvað þýðir orðið KJÖGGUR?

Um síðustu helgi fór ferðafélagið í fjöru og hella- skoðunarferð austur í Álftarfjörð. Labbað var með ströndinni frá Blábjörgum út að Melrakkaneshellum undir leiðsögn Jónu Þormóðs. Margt skemmtilegt var að sjá á leiðinni,t.d fugla, seli, hreindýr hellar eyjar og sker. Ekki skemmdi það fyrir hvað veðrið var gott. Fræddi Jóna okkur um örnefni og staðhætti til lands og sjávar. Langar okkur til að varpa einni spurningu til ykkar. Veit einhver hvað orðið KJÖGGUR þýðir,ef svo er sendið okkur endilega svarið. En Kjöggur er nafn á litlu skeri skammt frá landi fyrir neðan Blábjörg. Að lokinni skemmtilegri göngu var öllum boðið í kaffi og kökur á Rannveigarstöðum.

Þökkum við kærlega fyrir það og einnig Jónu fyrir leiðsögnina. Að lokum viljum við minna á næstu ferð félagsins sem er fimmtudaginn 12. júní á Skálatinda í Nesjum. Þaðan er frábært útsýni yfir sveitir Austur-Skaftafellssýslu.
Hlökkum til að sjá ykkur
- Ferðanefndin

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica