Júní
Einar Þórólfsson
Einar Þórólfsson
Einar Þórólfsson hjá Fiskmarkaði Suðurnesja á Hornafirði

06.06.2008 Júní

Ævintýralegt fiskirí

Mikill og góður afli hefur verið hjá Hornafjarðarbátum í vor og snurvoðarbátar hafa mokaflað. Humarveiðar hafa gengið vel en nokkuð er farið draga úr veiðum núna. Allur þorskur og humar er unninn hér á staðnum en aðrar fiskitegundir fara á fiskmarkaðinn. Einar Þórólfsson hjá Fiskmarkaði Suðurnesja á Hornafirði segir að óvenjumikið af fiski hafi komið á markaðinn undanfarið, þetta hefur verið alveg ævintýralegt fiskirí og góður fiskur núna seinni partinn í vetur og vor alveg framundir sjómannadag síðan hefur lítil veiði verið. Fleiri aðkomubátar hafa landað hér en áður og kemur afli þeirra allur á markaðinn og er allt sent burt. Síðustu fimm mánuði höfum við fengið 2000 tonn af fiski en allt árið í fyrra fengum við 3500 tonn.

Einar segir að eftir sjómannadag sé veiði léleg en það er bara föst regla árlega að eftir sjómannadag og frameftir sumri veiðist lítið og þá er spurningin hvort ekki væri ráð að fresta sjómannadeginum t.d. þangað til nær líður að sumarfríum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica