Júní
Lækjarnes_
Lækjarnes_
Lækjarnes_
Mynd 1 af 3
1 2 3

05.06.2008 Júní

Fagurt kvöld í Lækjarnes í Nesjum

Skemmtileg og fróðleg ferð í Lækjarnes undir góðri leiðsögn Sigurbjargar Ragnarsd sem sýndi okkur marga hóla sem allir báru nöfn. Ferðin hófst við Bryggjuhól einnig má nefna Efstihóll, Hesthóll og Hornahóll . Bærinn stendur á Fremstahól og þar eru þau Sigfinnur og Sigurbjörg að gera upp lítið sætt hús, þar sem áður var járnsmiðja. Gaman var að virða fyrir sér Hornfjörðinn, Dilksnesið, fjallahringinn og hugsanlega nýja vegarstæði yfir Hornafjarðarfljótin, frá þessu sjónarhorni. Þess má geta að þarna var starfrækt bátasmíðastöð í mjög fallegu húsi með frönskum gluggum og var Björn Eymundsson yfirsmiður og einnig smíða hann margt fleira eins og líkkistur. Talið er að hann hafi smíðað yfir 100 báta en þó ekki alla í Lækjarnesi, hann fór einnig um sveitir og smíðaði fyrir bændur og búalið. Frá Lækjarnes var hafsögumálum sinnt allt til ársins 1954 af myndarbrag og oft við erfiðar aðstæður af Birni Eymundssyni og síðann af Jóhanni Albertsyni.
Tjaldurinn kann vel við sig þarna og var hann búinn gera sér hreiður á miðjum veginum og þurftum við að passa okkur að stíga ekki í hreiðrin.
Að lokum viljum við þakka Sigurbjörgu fyrir góðar mótttökur. Hittumst hress og kát í næstu ferðum
Kveðja Ferðanefndinn hjá Ferðafélaginu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica