Sumarbæklingur ÆTH kominn á vefinn
Sumarbæklingur æskulýðs- og tómstundaráðs Hornafjarðar Hornfirskt sumar 2008 er kominn út. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um íþróttir, tómstundir og ýmsa afþreyingu fyrir börn og unglinga í sumar. Í þessari viku verður bæklingnum dreift í hvert hús á Hornafirði. Hér kemur ávarp Matthildar Ásmundardóttur formanns Æskulýðs- og tómstundaráðs: Nú er að hefjast eitt skemmtilegasta tímabil ársins að mínu mati. Gróðurinn er að lifna við, það hlýnar í lofti og það gefast fleiri tækifæri til útiveru. Það er margt hægt að finna sér til dundurs hér í sveitarfélaginu á sumrin. Nú eigum við glæsilegan íþróttavöll sem mér til mikillar ánægju er mikið nýttur af íbúum sveitarfélagsins ungum sem öldnum.
Svo er að rísa hér glæsileg sundlaug en hún verður ekki tekin til notkunar fyrir þetta sumar og því er um að gera að kíkja í heimsókn í gömlu góðu sundlaugina okkar sem býr yfir sterkum karakter. Það er einnig tilvalið að nota sumarið til að skilja bílinn eftir heima og fara til vinnu fótgangandi eða á hjóli. Menningarmiðstöðin stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá fyrir börnin og bendi ég fólki á að kynna sér það sérstaklega.
Talandi ekki um alla útivistarmöguleikana hér í kringum okkur en víða eru merktar gönguleiðir og þær má finna á heimasíðunni ganga.is. Það er tilvalið að kynnast fjöllunum í kringum okkur og klífa eins og 2 fjöll í mánuði öll fjölskyldan saman. Ég vona að þið getið notið sumarsins á sem bestan hátt.
Matthildur Ásmundardóttir
formaður Æskulýðs- og tómstundaráðs
Hér má nálgast bæklinginn á pdf formi





Skrifa athugasemd