Maí
Björn Ingi Jónsson
Björn Ingi Jónsson
Björn Ingi Jónsson

27.05.2008 Maí

Míla og Rafholt Austurlandi gera með sér samstarfssamning

Rafholt á Austurlandi og Míla ehf. skrifuðu í dag undir samstarfssamning þess efnis að Rafholt taki að sér þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu á Austfjörðum. Um aðilaskipti er að ræða sem leiðir af sér að ekki verður um uppsagnir starfsfólks Mílu á svæðinu að ræða heldur munu níu starfsmenn Mílu á Austurlandi flytjast yfir til Rafholts. Sex starfsmanna Mílu starfa á Egilsstöðum og þrír á Höfn, Ingólfur Reynisson, Hjörtur Hjartarson, Sigurður Einarsson og Björn Ingi Jónsson sem hefur verið svæðisstjóri á Austurlandi, en hann verður hluthafi í Rafholt Austurlandi ehf. Samingurinn tekur gildi strax við undirskrift.
Starfsmenn Rafholts eru tíu fyrir samninginn en verða 19 eftir undirskrift. Það gefur til kynna að í stað níu starfsmanna Mílu sem séð hafa um þjónustu við fjarskiptakerfið á Austurlandi þá verða starfsmenn nítján talsins sem munu koma að þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu í framtíðinni. Það getur aðeins aukið enn frekar á gæði þjónustu við viðskiptavini Mílu á svæðinu. Það hefur verið stefna Mílu að gera svona samninga við fyrirtæki staðbundið um land allt um þjónustu við fjarskiftakerfi Mílu.

Samkvæmt samningnum munu starfsmenn Rafholts Austurlands sjá um allar nýlagnir, tengingar og viðgerðir á svæðinu, svo eitthvað sé nefnt. Míla mun áfram sinna uppbyggingu á fjarskiptaneti sínu, viðhaldi þess auk þess að sjá um bilanagreiningu. Með samningnum verður til umfangsmikil þekking á fjarskiptamálum á Austurlandi og þjónusta við kerfið verður bæði örugg og skilvirk.
Það felast mörg tækifæri fyrir Rafholt Austurlandi í því að gera samning um að þjónusta jafn stórt fjarskiptakerfi og kerfi Mílu er. Þetta er ein aðferð fyrir Rafholt Austurlandi til þess að vaxa og dafna og gefur líka heimamönnum tækifæri til að taka sjálfir að sér krefjandi verkefni segir Guðmundur H. Albertsson, framkvæmdastjóri Rafholts.
Ég er sannfærður um að þjónusta við viðskiptavini Mílu á eftir að styrkjast við þessa breytingu. Við höfum verið að straumlínulaga starfsemina og höfum farið þá leið að vinna með verktökum í stað þess að vera með starfsemi í hverju bæjarfélagi. Það hefur gengið mjög vel, segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu.

Rafholt Austurlandi var stofnað árið 2005. Fyrirtækið er í miklu og góðu samstarfi við Rafholt ehf. Kópavogi og fyrirtækin stutt hvort annað í verkefnum, bæði á Austurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu. Rafholt Austurlandi sérhæfir sig í uppsetningu ýmiskonar kerfa, s.s. tölvukerfa og loftræstikerfa, lagningu ljósleiðara og annarri almennri rafvirkjun.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica