Verðlaun í "Heimabyggðin mín"
Nemendur 8. bekkjar í Grunnskólanum í Hofgarði tóku í vetur þátt í verkefninu Heimabyggðin mín, á vegum Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni. Aðeins 2 nemendur eru í 8. bekk, þær Lydía Angelíka Guðmundsdóttir og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir en þessum árgangi er núna kennt heima í fyrsta skipti síðan fullnaðarprófið var aflagt fyrir áratugum og núverandi bekkjafyrirkomulag komst á.
Verkefnið gekk út á að koma með hugmyndir að einhverju sem gæti verið til hagsbóta fyrir byggðarlagið, og á vorönninni áttu nemendur hvers skóla sem voru þátttakendur að sameinast um eina hugmynd og útfæra hana. Þær stöllur unnu með hugmynd úr verðlaunaritgerð Lydíu fyrir jól, um lifandi safn í Sandfelli þar sem sýnd yrðu gömul vinnubrögð og þar yrði einnig kaffihúsið Þorgerðarkaffi, til minningar um Þorgerði landnámskonu.
Nemendur skólans komu þessum hugmyndum á framfæri með leik- og tónlistaratriðum á árshátíðinni í vor að viðstaddri dómnefnd. Nú hefur komið á daginn, að dómnefnd mat þetta verkefni til verðlauna til jafns við verkefni tveggja stúlkna í Grunnskóla Drangsness á Ströndum, þannig að þessir tveir skólar deila 1. og 2. verðlaunasæti. Stúlkurnar fjórar hafa því unnið sér inn þriggja daga ferð til Kaupmannahafnar sem þær munu fara í ásamt umsjónarmönnum 3. júní, en verðlaunaafhendingin fer fram í Reykjavík 2. júní. Fríða Vala Ásbjörnsdóttir formaður L.B.V.R.N. verður fararstjóri í ferðinni.
Þær á Drangsnesi voru líka með hugmynd að safni, þ.e. grásleppu- og nytjasetur.
3. verðlaun hlaut Víðstaðaskóli í Hafnarfirði en þeirra hugmyndavinna var um skautasvell á Þórsplani.
Það er full ástæða til að óska öllu þessu unga fólki til hamingju með afar góðan árangur af sinni vinnu og það verður skemmtilegt að tengja á þennan hátt Öræfin og Strandirnar með sameiginlegu ferðalagi vinningshafa, en skólarnir eru áþekkir að stærð og gerð.





Skrifa athugasemd