Maí
Grunnskólanemendur í lokaprófum
Í dag voru síðustu próf annarinnar í FAS. Það voru nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar sem komu í FAS og tóku próf í: Bókfærslu, grunnteikningu og þýsku. Það voru alls 34 nemendur sem þreyttu prófin. Hér er örugglega metfjöldi grunnskólanemenda sem stundar nám við skólann. Þetta er ánægjuleg þróun í samstarfi skólanna og um leið möguleiki fyrir nemendur í 10. bekk að hefja framhaldsskólanám samhliða grunnskólanámi.
Auk þess þessara greina sem prófuð voru í dag voru nokkrir nemendur í 10. bekk í öðrum greinum í FAS en þær voru: Danska, enska, ferðamálafræði, náttúrufræði og spænska.
-FAS





Skrifa athugasemd