Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu
Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda, sem er borinn og barnfæddur Hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar. Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum. Lárus og Alda eiga þrjár litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7 ára. Þær þurfa á hans umönnun að halda og einnig okkar stuðningi í þessari baráttu.
Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur í Sparisjóði Hornafjarðar handa þessari fjölskyldu.
Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum þeim lið!
Margt smátt gerir eitt stórt.
Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379.





Skrifa athugasemd