Maí
Ungmennaþing í Nýheimum
Ungmennaþing í Nýheimum
Ungmennaþing í Nýheimum
Mynd 1 af 2
1 2

22.05.2008 Maí

Forvitnilegt ungmennaþing

Á sunnudaginn var haldið ungmennaþing í Nýheimum. Til þingsins boðuðu Ungmennaráð Hornafjarðar og æskulýðs- og tómstundaráð. Emil Morávek formaður ungmennaráðs setti þingið og Helga Lucia Bergsdóttir varaformaður æskulýðs- og tómstundaráð stýrði því. Níu frummælendur tóku til máls um íþróttir, tómstundir, menningu, atvinnumál, forvarnir, ungmennahús og framtíðarsýn ungs fólks. Eftir framsögur var tekið til við að kryfja það efni nánar sem fram hafði komið.
Varðandi íþróttamálin kom fram að langflestir iðkendur eru undir 16 ára aldri og er knattspyrnan lang fjölmennasta íþróttagreinin. Frjálsar íþróttir hafa vaxið mjög í kjölfar unglingalandsmótsins og bættrar aðstöðu þá má líka nefna motocrossið. Umf. Sindri hyggst bjóða upp á meiri fjölbreytni í íþróttum m.a. kajakaróðri, skák og bridds og er áhugi að fara með kynningarstarf inn í skólana á fleiri íþróttagreinum til að bæta við flóruna. Rætt var um áfengis-, tóbaks- og fíkniefnaneysla og þar kom fram að nánast engin neysla er hjá aldurshópnum 16 ára og yngri. Var bent á mikilvægi þess að horfa til þess hóps sem ekki neytti vímu- eða fíkniefna og fá hann til að halda merkinu á lofti. Mikið var rætt um svokallað ungmennahús, þörfina á slíku húsi og hvar slík hús hafa verið tekin í notktun og hvernig það hefði gengið á þeim stöðum þar sem ungmennahúsin hafa verið starfrækt. Könnun meðal framhaldsskólanema á Hornafirði á áhuga fyrir ungmennahúsi sem 50 nemendur tóku þátt í leiddi í ljós að 98% áhugi er á meðal nemenda á að stofna ungmennahús. Tæknivæðing samfélagsins veldur því að krakkar hittast ekki lengur heldur spjalla saman í gsm síma eða á tölvunum. Fram kom í máli margra að e.t.v. væri skynsamlegra að byrja smátt í þessum efnum og reyna svo að byggja ofan á. Þá kom það skýrt fram í máli unga fólksins að mikilvægt er að huga að tómstundum fyrir það yfir sumartímann. Unglingamenningin fékk sína umfjöllun og var haft á orði að íþróttamenning væri mjög ríkjandi hér á Hornafirði
Lögð var áherslu á að bjóða ætti upp á valmöguleika í félagsstarfi sem henti unglingum hverju sinni. Hugmynd að markmiði í þeirra hóp er að gera sig sjálf sýnilegri í bæjarfélaginu á þeirra forsendum. Krakkarnir þurfa að bera ábyrgð á sínu félagsstarfi sjálf - ÞETTA VANTAR Í DAG. Hafa þarf félagsmiðstöðina opna á sumrin því þá hittast krakkar enn síður þar sem allir eru í vinnu hingað og þangað. Stofna leikhóp á sumrin sambærilegan og vinnuskólann. Leikhópurinn væri á launum hjá sveitarfélaginu á sumrin við leiklistina. Varðandi framtíðarsýnina koma fram að byggja ætti Ungmennahús upp með sömu formerkjum og Nýheima, fá unga fólkið til að "búa til" - "skapa". Fá þannig hús til að búa til tækifæri. Fá inn fyrirtækjahugsunina, frumkvæði og frumkvöðlahugsun.
Í þinglok var öllum boðið í pizzuveislu við undirleik þungarokkssveitar sem skipuð er nemum í Grunnskóla Hornafjarðar og Framhaldsskóla Austur - Skaftafellssýslu.
Umræður dagsins sýndu fram á að svona þing eru gagnleg og sú skoðun, að gera eigi ungmennaþingið að föstum samstarfs - og samráðsvettvangi, kom mjög skýrt fram í umræðunum. Það verður síðan verkefni Ungmennaráðs og Æskulýðs- og tómstundaráðs að vinna úr þeim upplýsingum og áherslum sem fram komu á þinginu á næstunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica