Maí
Grátrana á flugi
Grátrana á flugi
Grátrana á flugi
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

22.05.2008 Maí

Grátrana á Mýrum

Þessi virðulegi fugl sem spókaði sig suður á Mýrum í gær nánar tiltekið skammt frá vegamótum Haukafellsvegar. Þetta er Grátrana sem kemur hingað frá Evrópu og að sögn Björns Arnarsonar hjá Fuglaathugunarstöðinni á Höfn er hann fremur sjaldgæfur hér hefur sést um 40 sinnum hér á landi. Grátrana var við Svínhóla í Lóni í vor og sást síðast við Syðri-Fjörð í Lóni svo ekki er ólíklegt að hér sé um sama fuglinn að ræða.
Fuglinum var greinilega lítið hrifinn af myndatökum og forðaði sér hið snarasta, óneitanlega flottur þegar hann breiddi úr vængjunum og hóf sig til flugs.

Grátrana er stór fugl, hæð 110-120 cm og vænghaf 220-245 cm. Að sögn er þessi fugl spakur og glæsilegur.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica