Maí
Jakob segir að þetta sé góður ís
Jakob segir að þetta sé góður ís
Jakob segir að þetta sé góður ís
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

21.05.2008 Maí

Jöklaís í ríki Vatnajökuls

Framleiðsla á ekta rjómaís undir heitinu Jöklaís er hafin í Árbæ á Mýrum. Það eru hjónin hjónin Sæmundur Jón Jónsson og Anne Manly Thomsen í Árbæ sem komið hafa upp fullkominni aðstöðu fyrir ísframleiðslu. Sæmundur segir að þau hafi ákveðið að fara út í þessa framleiðslu eftir að hafa kynnst samskonar framleiðlu hjá hjónunum í Holtseli í Eyjafirði. Allt hráefnið var hér til staðar. Rjómaísinn er tilbúinn innan sólarhrings frá því mjólkin kemur úr kúnum, enginn flutningur milli staða og því óhætt að segja að ferskari verður framleiðslan ekki. Anne er aðal ísmeistarinn og segist vera að prufa sig áfram í ísuppskriftunum og finna út það besta, einnig er hún með ís fyrir þá sem ekki þola mjólkur eða rjómaís og eins fyrir sykursjúka.
Lögð verður áhersla á að vinna og nota margskonar heimafengin bragðefni í ísinn svo sem berja-og rabarbarasaft, jurtir, ber og ávexti o.m.fl. einnig bragðefni frá sælgætisverksmiðjunni Freyju á Höfn. Humar skipar stóran sess í matarflórunni á Hornafirði og Anne lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og stefnir á að verða með humarís sem verður góð viðbót við þá fjölmörgu humarrétti sem Hornfirskir veitingastaðir bjóða uppá. Jöklaísinn verður til sölu í neytendaumbúðum hjá ferðaþjónustunni á Brunnhól og hjá Kokkinum við Víkurbraut á Höfn.

Sæmundur segir þetta vera lið í því átaki sem ferðaþjónustuaðilar og fleiri samtök í sveitarfélaginu hafa sameinast í undir heitinu ,"Í Ríki Vatnajökuls" um að efla starfsemi og auka fjölbreytni í ferðaþjónustu á svæðinu. Einnig eru þau þátttakendur í verkefninu "Beint frá býli", heimavinnsla og sala afurða sem hefur það að leiðarljósi að fækka milliliðum frá bónda til neytenda.
Fréttamaður vefsins getur upplýst það að Jöklaísinn er einstaklega ljúffengur og á það við um allar tegundirnar sem til voru í dag og óskar vefurinn eigendunum innilega til hamingju með þetta góða framtak.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica