Maí
Æfingamót
PICT0096
Æfingamót

15.05.2008 Maí

Æfingamót hjá hestamannafélaginu Hornfirðingi

Hestamannafélagið stendur fyrir æfingamóti sunnudaginn 18. maí næstkomandi og er það hugsað sem æfing fyrir félagsmótið sem haldið verður um miðjan júní . Á félagsmótinu fer einnig fram úrtaka fyrir Landsmót hestamanna.
Mótið fer þannig fram að riðin er venjuleg gæðingakeppni nema að dómari gefur umsögn fyrir hvern og einn keppanda um það sem betur má fara og eða það sem vel er gert.
Dómari verður Skúli Steinsson, sem er Hornfirskum hestamönnum löngu kunnur. Skúli verður með einkatíma á laugardaginn 17. maí og þar geta menn mætt með hestinn sinn eða hesta sína og fengið leiðsögn. Skráning í einkatíma er hjá Hanni í síma 4781903 og 8453832
Skráning á mótið fer fram í Stekkhól kl 12:00 á sunnudaginn. Keppt verður í öllum flokkum. Mótið hefst kl 13:00 stundvíslega. Veitingar verða í Stekkhól.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica