Halló, halló – Ungmennaþingið
Á sunnudaginn kemur þann 18. maí ætlar Ungmennaráð Hornafjarðar og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar að bjóða ungu fólki á Hornafirði til þings í Nýheimum þar sem verður spáð í ýmis mál sem unga fólkið á að láta sig varða um s.s. ungmennahús, tómstundir og íþróttir, unglingamenningu, atvinnumál og þjónustu sveitarfélagsins.
Líka verður horft til framtíðar. Þingið hefst kl. 14:00 í Nýheimum þar sem málin verða rædd og á eftir verður hópastarf. Að loknu þingi verður farið í Pakkhúsið þar sem ungu fólki verður boðið til mikillar pizzuveislu með tónlistarívafi. Ungt fólk á Hornafirði er hvatt til að mæta þarna og láta í sér heyra. Þá mega mamma,pabbi, afi og amma alveg kíkja við.
Meðal þeirra sem ræða málin á þinginu eru: Emil Örn formaður Ungmennaráðs, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Jóhann Bergur Kiesel nemi, Elvar Bragi Kristjónsson nemi, Magnús J.Magnússon formaður Leikfélags Hornafjarðar, Matthildur Ásmundardóttir formaður æskulýðs- og tómstundaráðs, Valdemar Einarsson í Sindra, Jón Garðar Bjarnason lögreglumaður og Guðmundur Heiðar Gunnarsson verkefnastjóri í Matvís.
Þingstjóri verður Helga Lucía Bergsdóttir varaformaður æskulýðs- og tómstundaráðs.
Dagsskrá er hér





Skrifa athugasemd