Maí
Jóhann Klemens Björnsson, Björn Arnarson og Gísli Eysteinn Helgason
Jóhann Klemens Björnsson, Björn Arnarson og Gísli Eysteinn Helgason
Jóhann Klemens Björnsson, Björn Arnarson og Gísli Eysteinn Helgason
Mynd 1 af 2
1 2

14.05.2008 Maí

Allir farfuglar eru komnir til landsins

Merkingar á fuglum er eitt af þeim störfum sem starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði sinna og þann 6. maí merktu þeir 10 þúsundasta fuglinn sem er maríuerla en merkingar hófust hjá stöðinni vorið 2005. Hlé verður nú á merkingum þar til í ágúst. Allir farfuglar eru komnir til landsins og að venju var óðinshaninn þeirra síðastur. Nokkuð hefur sést af bæjarsvölum undanfarið en ekki náðist að merkja neina þeirra. Meira virðist af kríu en í fyrra og skúmurinn er mikið sýnilegri vegfarendum um Breiðamerkursand en var í fyrra og telur Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöðinni það sýni að fuglinn hafi nægilegt æti en ætisskortur var talin orsök þess hvað varp þessara fugla var lélegt í fyrra. Álftum hefur fjölgað ár frá ári og verpa orðið hér um alla sýsluna víða nálægt alfaraleiðum og láta umferð ekki trufla sig. Hornfirðingar hafa í mörg ár fylgst með álftahjónum sem verpt hafa rétt við þjóðveg 1 við Krossbæ og komið þar upp ungum sínum, en nú eru komin önnur hjón í hreiðrið a.m. k. annað þeirra. Björn segir að önnur álftin sem þar var hafi verið merkt en þessar eru báðar ómerktar og þá er spurningin hvort önnur álftin hafi dáið og kominn sé nýr maki eða hvort hér sé um nýtt par að ræða en þeirri spurningu verður líklega ósvarað.

Björn telur æðarvarp vera heldur með seinna móti en fyrstu álfta og gæsaungarnir ættu að fara að koma úr eggjunum. Þó heldur vori seint lítur vel út með varp fugla og nú er bara að vona að sumarið sé komið fyrir alvöru


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica