Maí
LHG
LHG
Áhöfnin af Eir að fara af stað til leitar. (Myndasafn LHG)

13.05.2008 Maí

Neyðarsendir fór af stað við suðurjaðar Breiðamerkurjökuls - leit afturkölluð

Þyrla LHG TF-GNÁ fór í loftið kl. 16:27 vegna neyðarsendis sem tók að senda við suður jaðar Breiðamerkursjökuls kl. 15:24 í dag. Kl. 15:39 fékkst svokölluð staðfesting á sendingunni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hóf þegar í stað eftirgrennslan varðandi það hvort einhver aðili gæti verið á ferðinni á jöklinum með PLB "personal locator beacon" og fékkst staðfest frá björgunarmiðstöðinni í Bodö í Noregi að eigandi þessa tiltekna neyðarsendis er Ítali sem samkvæmt heimildum mun vera á ferðalagi hér á landi. Sú staðfesting fékkst með símtali til systur hans en hún var skráð sem tengiliður við eigenda sendisins. Lögreglan á Hornafirði fer með forræði aðgerða, og samkvæmt henni þurfti ferðamaðurinn, sem var einn á ferð, á minniháttar aðstoð að halda og frekari aðgerðir hafa verið afturkallaðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica