Fyrstu kýrnar í nýja fjósið í Flatey á Mýrum
Í gærkvöldi komu fyrstu kýrnar í nýja fjósið í Flatey á Mýrum og er þar með náð fyrsta áfanga af mörgum stórum. Við eigum enn eftir að ganga frá mörgu hér áður en allt verður komið í gang í fjósinu sagði Reynir Sigursteinsson umsjónarmaður í Flatey, við erum að byrja á að venja kýrnar við nýja staðinn og það eitt tekur sinn tíma en þetta ætti að vera komið alveg í gang í byrjun júní. Fjósið er í endurbyggðu húsi þar sem áður fyrr var heykögglaverksmiðja og til að byrja með verða þar 120 mjólkurkýr. Eydís Benediktsdóttir, sem búið hefur á Höfn, flytur nú aftur heim á Mýrarnar sest að í Flatey og tekur að sér umsjón með kúnum. Hún segir að sér litist vel á nýja starfið og er auðheyrt að hún er ánægð með að vera komin aftur í sveitina sína.
Betur verður sagt frá kúabúinu í Flatey þegar allt verður frágengið og starfsemin komin í fastar skorður.





Skrifa athugasemd