Maí
Morsárjökull- Berghlaup 2007
Morsárjökull- Berghlaup 2007
Morsárjökull- Berghlaup 2007

07.05.2008 Maí

Berghlaupið við Morsárjökul 20. mars 2007

Fyrirlestur á vegum Skaftafellsþjóðgarðs 8. maí í Hofgarði

Dr. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra mun fjalla um berghlaup sem féll á Morsárjökul 20. mars 2007 í fyrirlestri í Hofgarði 8. maí kl. 20. Hópur vísindamanna hefur unnið að kortlagningu berghlaupsins og voru farnar nokkrar ferðir upp á jökulinn síðastliðið sumar.Auk Þorsteins hafa sérfæðingar frá Veðurstofu Íslands, Vatnamælingum Orkustofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Laboratory of Physical & Environmental Geography, Clermont-Ferrand, Frakklandi, Náttúrustofu Suðurlands og Náttúrustofu Norðurlands vestra komið að rannsókn og kortlagningu berghlaupsins. Berghlaupið féll úr hamrinum austan við efsta hluta jökulsins rétt innan við Birkidal, dalverpi sem gengur til austurs, norðan við Skarðatind. Brotsár hlaupsins liggur í um 950-620 m hæð og er allt að 330 m hátt. Það féll á jökulinn í um 500 m hæð og stöðvaðist skriðutungan í um 350 m hæð. Breidd skriðutungunnar er um 470 m og er hún 1400-1600 m löng, eða um 700.000 m2. Meðalþykkt er áætluð tæplega 6 m. Talið að berghlaupið sé um 4 milljónir rúmmetra og telst til stærri berghlaupa sem fallið hafa hér á landi í seinni tíð.

Í fyrirlestrinum mun Þorsteinn sýna myndir sem teknar voru síðastliðið sumar af berghlaupinu, fjalla um orsakir þess, gerð berggrunns svæðisins og spá í eðli hreyfinga berghlaupsins. Þá verður sagt frá útreikningum sem gerðir voru með landlíkani af berghlaupstungunni og vandamálum sem fylgja slíkum útreikningum, meðal annars vegna örrar bráðnunar jökla á Íslandi hin síðari ár. Þorsteinn mun einnig fjalla almennt um berghlaup á Íslandi og bera berghlaupið við Morsárjökul saman við svipaða atburði sem gerst hafa á síðastliðnum áratugum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica