Ljósmyndanámskeið á Höfn Hornafirði
Dagana 11. og 12. júní kl. 18 - 22 verður haldið námskeið í ljósmyndun í Nýheimum.
Ljósmyndanámskeiðið eru fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ljósmynduninni og einnig þá sem vilja öðlast meiri þekkingu. Á þessu 8 klukkustunda námskeiði er farið í helstu stillingaratriðin á stafrænni myndavél svo sem:
ljósop, hraða, ISO, White Balance, flass, pixla, jpg/raw ofl.
Almenn myndataka er útskýrð og gefin ýmis góð ráð til að ná betri myndum, m.a. af fólki, landslagi, nærmyndum, norðurljósum ofl. Auk þess er farið í myndbyggingu. Mismunandi linsur eru kynntar og notkun á filterum.
Tölvumálin eru tekin fyrir og ma. sýnt hvernig hægt er að koma skipulagi á myndasafnið á einfaldan hátt, geyma myndir með öruggum hætti ofl. Ýmis forrit verða kynnt sem koma að góðum notum.
Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson, GSM 898 3911. Námskeiðið er 2 x 4 klst. og kostar 14.900 kr.
Skráning á námskeiðið er á vefsíðunni www.ljosmyndari.is





Skrifa athugasemd