Maí
Jóna Margrét og Ellý á nýju stofunni
Jóna Margrét og Ellý á nýju stofunni
Jóna Margrét og Ellý á nýju stofunni
Mynd 1 af 3
1 2 3

04.05.2008 Maí

Jóna Margrét Jónsdóttir opnar hársnyrtistofu

Ný hársnyrtistofa opnaði föstudaginn 2. maí s.l. á Vesturbraut 2. Er það Jóna Margrét Jónsdóttir, dóttir Eyrúnar Steindórsdóttur frá Hvammi í Lóni, sem opnar þarna stofu en Jóna hefur leigt Hársnyrtistofu Ingibjargar síðan í árslok 2004. Keypti hún húsnæðið af Sigríði Birgisdóttur og Guðmundi Ólafssyni sem ráku þarna Videóval til fjölda ára. Jóna Margrét og eiginmaður hennar, Ragnar Már húsasmiður, hafa unnið að því hörðum höndum undanfarið að innrétta hárstofuna, með góðri hjálp vina og vandamanna. Jónas Friðriksson, Rafhorni, sá um að setju upp lýsinguna. Ellý María Guðmundsdóttir sem hefur verið með Jónu Margréti á Hafnarbrautinni kemur til með að leigja áfram stól á nýju stofunni. Á nýju stofunni, sem enn hefur ekki fengið formlegt nafn, verður áfram sama símanúmer, 478 1780.
Jóna Margrét útskrifaðist sem hársnyrtisveinn vorið 2003 og sem hársnyrtimeistari vorið 2007.

Í tilefni af opnuninni var á staðnum sérfræðingur frá Wella og Sebastian með hárgreiningartæki og bauð upp á fría hárgreiningu og ráðleggingar um umhirðu hárs, og allar hársnyrtivörur voru á afslætti. Verður boðið upp á fleiri opnunartilboð út maímánuð, verða þau nánar auglýst síðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica