Maí

Nýstúdentar FAS vorið 2008

Nýstúdentar og vélstjórar útskrifast frá FAS - 28.05.2008 Maí

Laugardaginn 24. maí sl. fór fram útskrift stúdenta og vélstjóra í Nýheimum. Að þessu sinni útskrifuðust tuttugu og þrír nemendur, sextán stúdentar og sjö vélstjórar. Þetta er metfjöldi útskriftarnemenda en einu sinni áður hafa jafnmargir stúdentar útskrifast. Nýstúdentar eru: Benni Albert Friðþórsson, Eik Mohini Aradóttir, Eva Ösp Björnsdóttir, Goran Basrak, Guðný Gígja Benediktsdóttir, Guðný Sjöfn Þórðardóttir, Guðrún Jóna Hauksdóttir, Haukur Halldórsson, Hrafn Eiríksson, Hróðmar Jónsson, Karl Guðni Kristjánsson, Olgeir Halldórsson, Sigfinnur Mar Þrúðmarsson, Sindri Snær Þorsteinsson, Valdís Ósk Sigurðardóttir og Þóra Sigríður Guðmundsdóttir. Dúx skólans að þessu sinni er Valdís Ósk Sigurðardóttir. Af A-stigi vélstjórnar útskrifuðust: Aðalsteinn Guðmundsson, Alexander Oddsson, Björn Jón Ævarsson, Grétar S. Sigursteinsson, Hólmar H. Unnsteinsson, Júlíus A. Albertsson og Ólafur Jónsson. Lesa meira
 
Björn Ingi Jónsson

Míla og Rafholt Austurlandi gera með sér samstarfssamning - 27.05.2008 Maí

Rafholt á Austurlandi og Míla ehf. skrifuðu í dag undir samstarfssamning þess efnis að Rafholt taki að sér þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu á Austfjörðum. Um aðilaskipti er að ræða sem leiðir af sér að ekki verður um uppsagnir starfsfólks Mílu á svæðinu að ræða heldur munu níu starfsmenn Mílu á Austurlandi flytjast yfir til Rafholts. Sex starfsmanna Mílu starfa á Egilsstöðum og þrír á Höfn, Ingólfur Reynisson, Hjörtur Hjartarson, Sigurður Einarsson og Björn Ingi Jónsson sem hefur verið svæðisstjóri á Austurlandi, en hann verður hluthafi í Rafholt Austurlandi ehf. Samingurinn tekur gildi strax við undirskrift. Starfsmenn Rafholts eru tíu fyrir samninginn en verða 19 eftir undirskrift. Það gefur til kynna að í stað níu starfsmanna Mílu sem séð hafa um þjónustu við fjarskiptakerfið á Austurlandi þá verða starfsmenn nítján talsins sem munu koma að þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu í framtíðinni. Það getur aðeins aukið enn frekar á gæði þjónustu við viðskiptavini Mílu á svæðinu. Það hefur verið stefna Mílu að gera svona samninga við fyrirtæki staðbundið um land allt um þjónustu við fjarskiftakerfi Mílu. Lesa meira
 
Heimsokn_Longuholar._021

Eldvarnir í leikskólum - 27.05.2008 Maí

Á mánudaginn var, 26. maí, heimsóttu okkur á slökkvistöðina krakkar frá leikskólanum Lönguhólum og var þeim afhent viðurkenningarskjal, sem vott um að hafa tekið virkan þátt sem eldvarnaeftirlitsmaður á sínum leikskóla. Markmiðið með þessu verkefni er að minna á mikilvægi þessa málaflokks, eins og að tryggja að eldvarnir í leikskólunum séu ávallt eins og best verði á kosið og að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf og búnað slökkviliðsins. Eins að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki. Við skoðun á leikskólum kom í ljós að ástand þar er almennt gott og gaman að sjá hvað leikskólakennarar taka virkan þátt í að leiða þetta verkefni í sínum skólum. Gera má ráð fyrir að þessu verkefni verði haldið áfram næsta haust, kláruð rýmingaráætlun ogverður haldin rýmingaræfing árlega samkvæmt leiðbeiningum frá slökkviliðinu. Lesa meira
 
Frá árshátíð í Hofgarði

Verðlaun í "Heimabyggðin mín" - 26.05.2008 Maí

Nemendur 8. bekkjar í Grunnskólanum í Hofgarði tóku í vetur þátt í verkefninu Heimabyggðin mín, á vegum Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni. Aðeins 2 nemendur eru í 8. bekk, þær Lydía Angelíka Guðmundsdóttir og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir en þessum árgangi er núna kennt heima í fyrsta skipti síðan fullnaðarprófið var aflagt fyrir áratugum og núverandi bekkjafyrirkomulag komst á. Verkefnið gekk út á að koma með hugmyndir að einhverju sem gæti verið til hagsbóta fyrir byggðarlagið, og á vorönninni áttu nemendur hvers skóla sem voru þátttakendur að sameinast um eina hugmynd og útfæra hana. Þær stöllur unnu með hugmynd úr verðlaunaritgerð Lydíu fyrir jól, um lifandi safn í Sandfelli þar sem sýnd yrðu gömul vinnubrögð og þar yrði einnig kaffihúsið Þorgerðarkaffi, til minningar um Þorgerði landnámskonu. Nemendur skólans komu þessum hugmyndum á framfæri með leik- og tónlistaratriðum á árshátíðinni í vor að viðstaddri dómnefnd. Nú hefur komið á daginn, að dómnefnd mat þetta verkefni til verðlauna til jafns við verkefni tveggja stúlkna í Grunnskóla Drangsness á Ströndum, þannig að þessir tveir skólar deila 1. og 2. verðlaunasæti. Stúlkurnar fjórar hafa því unnið sér inn þriggja daga ferð til Kaupmannahafnar sem þær munu fara í ásamt umsjónarmönnum 3. júní, en verðlaunaafhendingin fer fram í Reykjavík 2. júní. Fríða Vala Ásbjörnsdóttir formaður L.B.V.R.N. verður fararstjóri í ferðinni. Lesa meira
 
10 bekkingar í prófi í FAS

Grunnskólanemendur í lokaprófum - 23.05.2008 Maí

Í dag voru síðustu próf annarinnar í FAS. Það voru nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar sem komu í FAS og tóku próf í: Bókfærslu, grunnteikningu og þýsku. Það voru alls 34 nemendur sem þreyttu prófin. Hér er örugglega metfjöldi grunnskólanemenda sem stundar nám við skólann. Þetta er ánægjuleg þróun í samstarfi skólanna og um leið möguleiki fyrir nemendur í 10. bekk að hefja framhaldsskólanám samhliða grunnskólanámi. Lesa meira
 

Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu - 23.05.2008 Maí

Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda, sem er borinn og barnfæddur Hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar. Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum. Lárus og Alda eiga þrjár litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7 ára. Þær þurfa á hans umönnun að halda og einnig okkar stuðningi í þessari baráttu. Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur í Sparisjóði Hornafjarðar handa þessari fjölskyldu. Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum þeim lið! Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379. Lesa meira
 
Ungmennaþing í Nýheimum

Forvitnilegt ungmennaþing - 22.05.2008 Maí

Á sunnudaginn var haldið ungmennaþing í Nýheimum. Til þingsins boðuðu Ungmennaráð Hornafjarðar og æskulýðs- og tómstundaráð. Emil Morávek formaður ungmennaráðs setti þingið og Helga Lucia Bergsdóttir varaformaður æskulýðs- og tómstundaráð stýrði því. Níu frummælendur tóku til máls um íþróttir, tómstundir, menningu, atvinnumál, forvarnir, ungmennahús og framtíðarsýn ungs fólks. Eftir framsögur var tekið til við að kryfja það efni nánar sem fram hafði komið. |Varðandi íþróttamálin kom fram að langflestir iðkendur eru undir 16 ára aldri og er knattspyrnan lang fjölmennasta íþróttagreinin. Frjálsar íþróttir hafa vaxið mjög í kjölfar unglingalandsmótsins og bættrar aðstöðu þá má líka nefna motocrossið. Umf. Sindri hyggst bjóða upp á meiri fjölbreytni í íþróttum m.a. kajakaróðri, skák og bridds og er áhugi að fara með kynningarstarf inn í skólana á fleiri íþróttagreinum til að bæta við flóruna. Lesa meira
 
Grátrana á flugi

Grátrana á Mýrum - 22.05.2008 Maí

Þessi virðulegi fugl sem spókaði sig suður á Mýrum í gær nánar tiltekið skammt frá vegamótum Haukafellsvegar. Þetta er Grátrana sem kemur hingað frá Evrópu og að sögn Björns Arnarsonar hjá Fuglaathugunarstöðinni á Höfn er hann fremur sjaldgæfur hér hefur sést um 40 sinnum hér á landi. Grátrana var við Svínhóla í Lóni í vor og sást síðast við Syðri-Fjörð í Lóni svo ekki er ólíklegt að hér sé um sama fuglinn að ræða. Fuglinum var greinilega lítið hrifinn af myndatökum og forðaði sér hið snarasta, óneitanlega flottur þegar hann breiddi úr vængjunum og hóf sig til flugs. Lesa meira
 
Jakob segir að þetta sé góður ís

Jöklaís í ríki Vatnajökuls - 21.05.2008 Maí

Framleiðsla á ekta rjómaís undir heitinu Jöklaís er hafin í Árbæ á Mýrum. Það eru hjónin hjónin Sæmundur Jón Jónsson og Anne Manly Thomsen í Árbæ sem komið hafa upp fullkominni aðstöðu fyrir ísframleiðslu. Sæmundur segir að þau hafi ákveðið að fara út í þessa framleiðslu eftir að hafa kynnst samskonar framleiðlu hjá hjónunum í Holtseli í Eyjafirði. Allt hráefnið var hér til staðar. Rjómaísinn er tilbúinn innan sólarhrings frá því mjólkin kemur úr kúnum, enginn flutningur milli staða og því óhætt að segja að ferskari verður framleiðslan ekki. Anne er aðal ísmeistarinn og segist vera að prufa sig áfram í ísuppskriftunum og finna út það besta, einnig er hún með ís fyrir þá sem ekki þola mjólkur eða rjómaís og eins fyrir sykursjúka. Lögð verður áhersla á að vinna og nota margskonar heimafengin bragðefni í ísinn svo sem berja-og rabarbarasaft, jurtir, ber og ávexti o.m.fl. einnig bragðefni frá sælgætisverksmiðjunni Freyju á Höfn. Humar skipar stóran sess í matarflórunni á Hornafirði og Anne lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og stefnir á að verða með humarís sem verður góð viðbót við þá fjölmörgu humarrétti sem Hornfirskir veitingastaðir bjóða uppá. Jöklaísinn verður til sölu í neytendaumbúðum hjá ferðaþjónustunni á Brunnhól og hjá Kokkinum við Víkurbraut á Höfn. Lesa meira
 
Matvæli í ríki Vatnajökuls

Matvæli í ríki Vatnajökuls - 19.05.2008 Maí

Ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasinn Ríki Vatnajökuls efnir til málþings og umræðna um tækifæri í samtvinningu matvælaframleiðslu, ferðamennsku og menningar á Suð-austurlandi. Á málþinginu verður lögð sérstök áhersla á að kynna og ræða möguleika sem liggja í fullvinnslu afurða yfir í sælkeravörur og sóknartækifæri í sameiginlegri markaðsetningu þeirra innan svæðis. Á málþinginu verða m.a. tekin dæmi um sælkeraafurðir í þróun, kynntar tillögur að matvælamerki svæðisins, sagt frá alþjóðlegum samstarfsverkefnum og gerð grein fyrir uppbyggingu vöruþróunaraðstöðu á Suð-austurlandi. Málþingið fer fram í Mánagarði í Nesjum 23. maí n.k. Lesa meira
 
Æfingamót

Æfingamót hjá hestamannafélaginu Hornfirðingi - 15.05.2008 Maí

Hestamannafélagið stendur fyrir æfingamóti sunnudaginn 18. maí næstkomandi og er það hugsað sem æfing fyrir félagsmótið sem haldið verður um miðjan júní . Á félagsmótinu fer einnig fram úrtaka fyrir Landsmót hestamanna. Mótið fer þannig fram að riðin er venjuleg gæðingakeppni nema að dómari gefur umsögn fyrir hvern og einn keppanda um það sem betur má fara og eða það sem vel er gert. Dómari verður Skúli Steinsson, sem er Hornfirskum hestamönnum löngu kunnur. Skúli verður með einkatíma á laugardaginn 17. maí og þar geta menn mætt með hestinn sinn eða hesta sína og fengið leiðsögn. Skráning í einkatíma er hjá Hanni í síma 4781903 og 8453832 Skráning á mótið fer fram í Stekkhól kl 12:00 á sunnudaginn. Keppt verður í öllum flokkum. Mótið hefst kl 13:00 stundvíslega. Veitingar verða í Stekkhól. Lesa meira
 
A_Laugum

Halló, halló – Ungmennaþingið - 15.05.2008 Maí

Á sunnudaginn kemur þann 18. maí ætlar Ungmennaráð Hornafjarðar og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar að bjóða ungu fólki á Hornafirði til þings í Nýheimum þar sem verður spáð í ýmis mál sem unga fólkið á að láta sig varða um s.s. ungmennahús, tómstundir og íþróttir, unglingamenningu, atvinnumál og þjónustu sveitarfélagsins. Líka verður horft til framtíðar. Þingið hefst kl. 14:00 í Nýheimum þar sem málin verða rædd og á eftir verður hópastarf. Að loknu þingi verður farið í Pakkhúsið þar sem ungu fólki verður boðið til mikillar pizzuveislu með tónlistarívafi. Ungt fólk á Hornafirði er hvatt til að mæta þarna og láta í sér heyra. Þá mega mamma,pabbi, afi og amma alveg kíkja við. Lesa meira
 
Jóhann Klemens Björnsson, Björn Arnarson og Gísli Eysteinn Helgason

Allir farfuglar eru komnir til landsins - 14.05.2008 Maí

Merkingar á fuglum er eitt af þeim störfum sem starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði sinna og þann 6. maí merktu þeir 10 þúsundasta fuglinn sem er maríuerla en merkingar hófust hjá stöðinni vorið 2005. Hlé verður nú á merkingum þar til í ágúst. Allir farfuglar eru komnir til landsins og að venju var óðinshaninn þeirra síðastur. Nokkuð hefur sést af bæjarsvölum undanfarið en ekki náðist að merkja neina þeirra. Meira virðist af kríu en í fyrra og skúmurinn er mikið sýnilegri vegfarendum um Breiðamerkursand en var í fyrra og telur Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöðinni það sýni að fuglinn hafi nægilegt æti en ætisskortur var talin orsök þess hvað varp þessara fugla var lélegt í fyrra. Álftum hefur fjölgað ár frá ári og verpa orðið hér um alla sýsluna víða nálægt alfaraleiðum og láta umferð ekki trufla sig. Hornfirðingar hafa í mörg ár fylgst með álftahjónum sem verpt hafa rétt við þjóðveg 1 við Krossbæ og komið þar upp ungum sínum, en nú eru komin önnur hjón í hreiðrið a.m. k. annað þeirra. Björn segir að önnur álftin sem þar var hafi verið merkt en þessar eru báðar ómerktar og þá er spurningin hvort önnur álftin hafi dáið og kominn sé nýr maki eða hvort hér sé um nýtt par að ræða en þeirri spurningu verður líklega ósvarað. Lesa meira
 
LHG

Neyðarsendir fór af stað við suðurjaðar Breiðamerkurjökuls - leit afturkölluð - 13.05.2008 Maí

Þyrla LHG TF-GNÁ fór í loftið kl. 16:27 vegna neyðarsendis sem tók að senda við suður jaðar Breiðamerkursjökuls kl. 15:24 í dag. Kl. 15:39 fékkst svokölluð staðfesting á sendingunni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hóf þegar í stað eftirgrennslan varðandi það hvort einhver aðili gæti verið á ferðinni á jöklinum með PLB "personal locator beacon" og fékkst staðfest frá björgunarmiðstöðinni í Bodö í Noregi að eigandi þessa tiltekna neyðarsendis er Ítali sem samkvæmt heimildum mun vera á ferðalagi hér á landi. Sú staðfesting fékkst með símtali til systur hans en hún var skráð sem tengiliður við eigenda sendisins. Lögreglan á Hornafirði fer með forræði aðgerða, og samkvæmt henni þurfti ferðamaðurinn, sem var einn á ferð, á minniháttar aðstoð að halda og frekari aðgerðir hafa verið afturkallaðar. Lesa meira
 
Kýr

Fyrstu kýrnar í nýja fjósið í Flatey á Mýrum - 09.05.2008 Maí

Í gærkvöldi komu fyrstu kýrnar í nýja fjósið í Flatey á Mýrum og er þar með náð fyrsta áfanga af mörgum stórum. Við eigum enn eftir að ganga frá mörgu hér áður en allt verður komið í gang í fjósinu sagði Reynir Sigursteinsson umsjónarmaður í Flatey, við erum að byrja á að venja kýrnar við nýja staðinn og það eitt tekur sinn tíma en þetta ætti að vera komið alveg í gang í byrjun júní. Fjósið er í endurbyggðu húsi þar sem áður fyrr var heykögglaverksmiðja og til að byrja með verða þar 120 mjólkurkýr. Eydís Benediktsdóttir, sem búið hefur á Höfn, flytur nú aftur heim á Mýrarnar sest að í Flatey og tekur að sér umsjón með kúnum. Hún segir að sér litist vel á nýja starfið og er auðheyrt að hún er ánægð með að vera komin aftur í sveitina sína. Lesa meira
 
Morsárjökull- Berghlaup 2007

Berghlaupið við Morsárjökul 20. mars 2007 - 07.05.2008 Maí

Dr. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra mun fjalla um berghlaup sem féll á Morsárjökul 20. mars 2007 í fyrirlestri í Hofgarði 8. maí kl. 20. Hópur vísindamanna hefur unnið að kortlagningu berghlaupsins og voru farnar nokkrar ferðir upp á jökulinn síðastliðið sumar.Auk Þorsteins hafa sérfæðingar frá Veðurstofu Íslands, Vatnamælingum Orkustofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Laboratory of Physical & Environmental Geography, Clermont-Ferrand, Frakklandi, Náttúrustofu Suðurlands og Náttúrustofu Norðurlands vestra komið að rannsókn og kortlagningu berghlaupsins. Berghlaupið féll úr hamrinum austan við efsta hluta jökulsins rétt innan við Birkidal, dalverpi sem gengur til austurs, norðan við Skarðatind. Brotsár hlaupsins liggur í um 950-620 m hæð og er allt að 330 m hátt. Það féll á jökulinn í um 500 m hæð og stöðvaðist skriðutungan í um 350 m hæð. Breidd skriðutungunnar er um 470 m og er hún 1400-1600 m löng, eða um 700.000 m2. Meðalþykkt er áætluð tæplega 6 m. Talið að berghlaupið sé um 4 milljónir rúmmetra og telst til stærri berghlaupa sem fallið hafa hér á landi í seinni tíð. Lesa meira
 
Skaftafell

Búið að opna þjónustumiðstöðina í Skaftafelli - 07.05.2008 Maí

Afgreiðsla í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli var opnuð 2.maí og verður afgreiðslan til að byrja með í landvarðarhúsinu sem er við þjónustumiðstöðina og verður opið frá kl.9-16. Það er ekki hægt að bíða með opnunina þar til allt verður tilbúið hér í þjónustumiðstöðinni sagði Hafdís Roysdóttir, allt er á fullu við endurbætur á gestastofunni, hér eru iðnaðarmenn að verki, smiðir frá Klaustri og málarar frá Höfn og stefnt á að allt verði tilbúið í byrjun júní. Þetta verður gríðarlega mikil breyting hér á húsnæðinu og aðstöðu bæði fyrir gesti og þá sem hér starfa, meira pláss verður fyrir sýninguna og í gestastofu, eldhús verður sett upp að nýju og verður veitingasala í glerskálanum sem er austast í húsinu. Skrifstofurnar verða áfram í landvarðarhúsinu ásamt kaffistofu og aðstöðu fyrir starfsfólk þjóðgarðsins. Lesa meira
 
Firmakeppni Hornfirðings

Úrslit í firmakeppni Hornfirðings - 07.05.2008 Maí

Firmakeppni Hornfirðings fór fram í talsverðum vindi ( allir hafa talað um blíðskaparveður ;) en það kom ekki að sök því að hestakosturinn var góður að venju. Fjölmörg fyrirtæki styrktu mótið og vill félagið færa þeim kærar þakkir fyrir stuðninginn. Þau nýmæli voru höfð á mótinu að riðinn var tví og þrígangur. Í tvígangi er riðið fegurðartölt og brokk en í þrígangi er riðið tölt, brokk og skeið.Í kaffihléi sýndu fjögur ungmenni atriði, sem þau höfðu samið og æft sjálf, í tamningargerðinu og var því mjög vel tekið. Í gerðinu sýndu þau m.a samhæfinga æfingar , spænska sporið, kyssa ístöð og fleira. Með þessu vildu þau sýna að hægt væri að gera svo miklu meira á hestum en bara að keppa. Þetta unga fólk heitir Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Nótt frá Sauðárkróki, Gunnar Ásgeirsson á Lukku frá Ási, Heiða J Pálmadóttir á Blíðu frá Nautabúi og Heiðdís Anna Marteinsdóttir á Hófvarpni frá Ártúni. Alveg frábært framtak hjá þeim! Lesa meira
 
Ljósmyndanámskeið

Ljósmyndanámskeið á Höfn Hornafirði - 05.05.2008 Maí

Dagana 11. og 12. júní kl. 18 - 22 verður haldið námskeið í ljósmyndun í Nýheimum. Ljósmyndanámskeiðið eru fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ljósmynduninni og einnig þá sem vilja öðlast meiri þekkingu. Á þessu 8 klukkustunda námskeiði er farið í helstu stillingaratriðin á stafrænni myndavél svo sem: ljósop, hraða, ISO, White Balance, flass, pixla, jpg/raw ofl. Almenn myndataka er útskýrð og gefin ýmis góð ráð til að ná betri myndum, m.a. af fólki, landslagi, nærmyndum, norðurljósum ofl. Auk þess er farið í myndbyggingu. Mismunandi linsur eru kynntar og notkun á filterum. Tölvumálin eru tekin fyrir og ma. sýnt hvernig hægt er að koma skipulagi á myndasafnið á einfaldan hátt, geyma myndir með öruggum hætti ofl. Ýmis forrit verða kynnt sem koma að góðum notum. Lesa meira
 
Sigrún Sigurgeirsdóttir

Veðurathuganir í Öræfum - 05.05.2008 Maí

Sigrún Sigurgeirsdóttir sem hefur séð um veðurathugunarstöðina á Fagurhólsmýri síðustu árin hefur sagt starfi sínu lausu og hætti 30.apríl sl. Ástæðuna fyrir því að Sigrún hættir segir hún fyrst og fremst vera þá að starfið sé alltof bindandi og aldrei hægt að bregða sér frá og launin eru þannig að ekki er hægt að hafa þetta sem aðalatvinnu. Það er erfitt að stunda aðra vinnu með þessu starfi þar sem veðurathugun er kl 6-9-12—18 og 21. Ég hef aldrei tekið mér frí þessi ár síðan ég tók við veðurathuguninni af bróður mínum og finnst mér kominn tími til að breyting verði þar á. Sigrún veit ekki hvar veðurathugunarstöð fyrir Öræfin kemur til með að vera eð hvort hún verður endanlega lögð niður a þessu svæði. Lesa meira
 
Jóna Margrét og Ellý á nýju stofunni

Jóna Margrét Jónsdóttir opnar hársnyrtistofu - 04.05.2008 Maí

Ný hársnyrtistofa opnaði föstudaginn 2. maí s.l. á Vesturbraut 2. Er það Jóna Margrét Jónsdóttir, dóttir Eyrúnar Steindórsdóttur frá Hvammi í Lóni, sem opnar þarna stofu en Jóna hefur leigt Hársnyrtistofu Ingibjargar síðan í árslok 2004. Keypti hún húsnæðið af Sigríði Birgisdóttur og Guðmundi Ólafssyni sem ráku þarna Videóval til fjölda ára. Jóna Margrét og eiginmaður hennar, Ragnar Már húsasmiður, hafa unnið að því hörðum höndum undanfarið að innrétta hárstofuna, með góðri hjálp vina og vandamanna. Jónas Friðriksson, Rafhorni, sá um að setju upp lýsinguna. Ellý María Guðmundsdóttir sem hefur verið með Jónu Margréti á Hafnarbrautinni kemur til með að leigja áfram stól á nýju stofunni. Á nýju stofunni, sem enn hefur ekki fengið formlegt nafn, verður áfram sama símanúmer, 478 1780. Jóna Margrét útskrifaðist sem hársnyrtisveinn vorið 2003 og sem hársnyrtimeistari vorið 2007. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica