Apríl
Nýtt skip bætist við í flota Skinneyjar Þinganess
Nýtt skip í eigu Skinneyjar Þinganess, Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til Hornafjarðar um hádegi í dag (30.apríl). Skipið sem er uppsjávarveiðiskip er hið glæsilegasta keypt í Skotlandi og hét áður Lunar Bow PD 265, smíðað í Flekkefjord i Noregi árið 2000. Lengd skipsins er 61 m, breidd 13 m. og er það búið 7400 hestafla aðalvél og burðargeta 1540 tonn í kælitönkum. Að sögn Sverris Aðalsteinssonar hjá Skinney Þinganesi er þetta þriðja skipið sem keypt er frá sama fyrirtækinu í Skotlandi og annað skipið sem ber nafnið Ásgrímur Halldórsson.
Skipstjórar á Ásgrími Halldórssyni eru Sigurður Ægir Birgisson og Ásgrímur Ingólfsson.





Skrifa athugasemd