Badmintonhópar frá Hornafirði og Reykjavík hittust á miðri leið
Fyrir skömmu hittust badmintonhópar frá Hornafirði og Reykjavík á miðri leið, í Vík í Mýrdal, og spiluðu saman dagsstund. Reykjavíkurhópurinn er skipaður Hornfirðingum að stofni til auk ýmissa góðra félaga. Í Vík voru fyrir vaskir badmintonspilarar svo úr var þriggja hópa mót. Móttökur í Vík voru afar góðar svo og aðstaða öll til fyrirmyndar. Eftir mótið var farið í sundlaugina og heita pottinn. Stefnt er að öðru móti Skaftfellinga að hausti og að þessu sinni á Kirkjubæjarklaustri ef fer sem horfir. Það er fagnaðarefni að þessum viðburði því þarna skemmti sér fólk á ólíkum aldri við þessa krefjandi en fjölbreyttu íþrótt. Úrslit voru ekki sérstaklega gefin út en þátttakendur allir, sem voru kringum tuttugu talsins, voru sjálfum sér og liðum sínum til sóma.
Lið Hornfirðinga heitir Hornafjörður Badminton Group og er Haukur Helgi Þorvaldsson liðsstjóri þeirra. Lið sunnanmanna heitir Hrollaugsmenn og er Gísli Sverrir Árnason liðsstjóri þeirra. Víkurliðið var undir stjórn Guðrúnar Ólafsdóttur. Í bígerð er sem sagt að efna til móts sömu aðila á Kirkjubæjarklaustri í haust og þá verður skoðað hvort heimamenn þar vilja slást í hópinn.





Skrifa athugasemd