Líflegt í Grunnskólanum í Hofgarði
Það hefur verið líflegt í Grunnskólanum í Hofgarði að undanförnu.
Laugardaginn 13. apríl var Eiríkur Hansson með smíðakennslu í skólanum, eins og hann hefur gert einu sinni á ári í allmörg ár. Þá er heill skóladagur tekinn í smíðar svo krakkarnir ná góðum afköstum.
Þriðjudaginn 15. apríl fjölgaði heldur betur á skólalóðinni þegar 6. og 7. bekkur á Höfn komu við á leið í Skaftafell, en hópurinn gisti í skólanum um nóttina.
Árshátíðin í Hofgarði var haldin við góðar undirtektir fimmtudagskvöldið 17. apríl. Bakgrunnur dagskrárinnar var bær í Sandfelli, sem tengdist verkefni 8. bekkjar um heimabyggðina, og fjallar um lifandi safn og kaffihúsið Þorgerðarkaffi í Sandfelli. Nemendur skólans tóku allir þátt í að flytja u.þ.b. klukkustundar langa dagskrá sem var látin gerast á hlaðinu í Sandfelli. Þar voru alls konar gestakomur, og auðvitað voru smáprakkarastrik á þessum bæ eins og víðar. Tónlistaratriði fléttuðust inn í dagskrána og að henni lokinni nutu gestir glæsilegra veitinga sem foreldrar og velunnarar skólans lögðu til.
Kveðja,
kennarar í Hofgarði





Skrifa athugasemd