Apríl
Dagur umhverfisins
aram_001
Dagur umhverfisins

22.04.2008 Apríl

Dagur umhverfisins

Dagur umhverfisins er 25.apríl nk. og í tilefni hans hefur verið boðað til fræðslufundar í Freysnesi í Öræfum og í Nýheimum á Höfn föstudaginn 25. apríl. Fundurinn í Freysnesi hefst kl 10.00 með ávarpi Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra en hún er nýlega tekin við því starfi. Regína Hreinsdóttir nýr þjóðgarðsvörður mun skýra frá ýmsum áherslubreytingum sem verða í Skaftafelli og framkvæmdum. Hafdís Roysdóttir segir frá Náttúruskólanum í Skaftafelli og starfseminni hans.Guðrún Guðmundsdóttir ræðir um Perluhópinn og Hjalti Þór Vignisson fjallar um verndaráætlanir. Fundinum líkur með því að Sigurlaug Gissurardóttir af hendir umhverfisviðurkenningu og að því loknu er boðið uppá súpu og brauð, í boði sveitarfélagsins.
Fundurinn á Höfn hefst kl.14.00 með ávarpi Ólafar Ýrr Atladóttur síðan verður kynning ýmissa aðila á Nýheimum og Þorvarður Árnason flytur erindi um umhverfisvernd og ferðaþjónustu.

Margrét Ingólfsdóttir flytur erindi sem nefnist Hvernig nýtum við náttúru og umhverfi í leikstjórastarfi og Snæfríður H. Svavarsdóttir ræðir um umhverfisvænan heilsuleikskóla.

Síðast á dagskránni er undirskrift Nesjaskóla og þar mun Hjalti Þór Vignisson gera grein fyrir því hvernig þeim peningum sem Sveitarfélagið fær fyrir Nesjaskóla verður varið.

Við ætlum að sameina þennan dag ferðaþjónustunni, umhverfinu og þjóðgarðinum og undirrituð verður verndaráætlun segir Rósa B. Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri í Ríki Vatnajökuls, og við hvetjum fólk til að koma á fundinn og það eru allir velkomnir. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri Umhverfissviðs vill sérstaklega benda öllum þeim sem eiga börn, ætla að eignast börn eða hafa umsjón með börnum að koma og hlusta á erindi leikskólastjóranna Margrétar og Snæfríðar þar sem þær ræða um nýjar og mjög áhugaverðar áherslur í leikskólastarfinu.

Munið að það eru allir velkomnir á fyrirlestrana og við vonumst til að sjá sem flesta segja Rósa og Haukur Ingi, þetta eru erindi og fróðleikur sem koma okkur öllum við

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica