Apríl
Ferðafólk og Sultartungnaá
Ferdafolk_og_Sultartungnaa_i_baksyn.jpg
Ferðafólk og Sultartungnaá

22.04.2008 Apríl

Brúargerð yfir Sultartungnaá

Brúarvinnuflokkur frá Vík í Mýrdal er að hefja framkvæmdir við smíði brúar yfir Sultartungnaá á veginum upp á Skálafellsjökul. Brúna sem þar var tók af í miklu hlaupi í ánni í haust. Verið er að hreinsa af klöppum og sprengja fyrir stöplum að brúnni og verður slegið upp fyrir þeim seinna í vikunni. Áætlað er að brúarsmíðinni verði lokið áður en ferðatíminn byrjar fyrir alvöru. Hægt er að komast á jeppum upp að brúarstæðinu en töluverður snjór er fyrir ofan gilið og verður varla fært upp á jökul á bílum fyrr en kemur fram í maí.

Brúin sem eyðilagðist var 17 m. löng byggð 1990.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica