Apríl
Miðfell apríl 2008
Miðfell apríl 2008
Miðfell apríl 2008
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

10.04.2008 Apríl

Stuðlar og göngustafir

Laugardaginn 5.apríl fór Ferðafélag A-Skaftfellinga í ferð að Miðfelli á Mýrum í björtu og fallegu veðri. Miðfell er ein af náttúruperlunum í nágreni okkar sem fáir vita um og ekki er á allra færi að komast þangað. Miðfell er lítið fell, alsett fjölbreyttum kynjamyndum úr stuðlabergi. Ekki var gengið á fellið en fjölbreytilegar bergmyndanir þess skoðaðar frá láglendinu.
Á vísindavefnum er að finna þennan fróðleik um Stuðlaberg.
"Stuðlaberg myndast vegna samdráttar í kólnandi efni. Þegar basaltbráð kólnar er hún orðin fullstorkin við um 1000°C hita. ?Eftir það kólnar bergið smám saman og dregst við það saman og klofnar í stuðla sem tíðum eru sexstrendir. Stuðlar standa ávallt hornréttir á kólnunarflötinn. Þeir standa því lóðréttir í hraunlögum og innskotslögum, láréttir í göngum en sem geislar út frá miðju í bólstrum." (Þorleifur Einarsson, Myndun og mótun lands).
Næsta ferð félagsins er í dag fimmtudaginn 10. apríl en þá verður farin kvöldferð að Bæ í Lóni. Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu kl. 18.00
Þetta verður létt ferð og allir eru velkomnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica