Apríl
Vinningspörin
Vinningspörin
Vinningspörin
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

08.04.2008 Apríl

Bridgemót til minningar um Torfa Steinþórsson á Hala

Árlegt bridgemót var haldið í Þórbergssetri um liðna helgi. Á laugardeginum var spilaður tvímenningur en inn á milli snætt dýrindis hrossakjöt og meðlæti.
18 pör tóku þátt og varð röð vinningspara eftirfarandi:
1.Birgir Björnsson > Sigfinnur Gunnarsson með 279 stig.
2.Gestur Halldórsson > Magnús Jónasson með 276 stig
3.Sveinn Símonarson > Sigurlaug Bergvinsdóttir með 275 stig

Á sunnudeginum var spiluð sveitakeppni en inn á milli snædd himnesk jöklableikja og meðlæti. 8 sveitir tóku þátt og urðu lyktir sem hér segir.
1.sveit skipuð Gesti, Magnúsi, Kristínu og Jóhönnu Guðmundsdætrum með 604 stig.
2.Sveit skipuð Gylfa Símonarsyni, Bergvini Sveinssyni, Sigfúsi Skúlasyni og Óla Gíslasyni með 590 stig.
3.Sveit skipuð Birni Ólafssyni, Páli Dagbjartssyni, Gísla Jóhannssyni og Þórbergi Torfasyni með 589 stig.

Allir vinningar í tvímenningskeppninni voru gefnir af versluninni NETTÓ á Hornafirði. Að auki fengu sigurvegarar farandgrip sem hannaður og smíðaður er af Jóni Tryggva Þórssyni. Vinningar í sveitakeppni voru gefnir af Landsbankanum, Skinney/Þinganes og Þórbergssetri. Einnig styrkti Sparisjóður Hornafjarðar mótið.
Í annað sinn er þetta mót haldið með þessu sniði. Jafnmargir þáttakendur voru nú og síðast sem fyllir okkur heimamenn og aðstandendur þeirri trú að þetta mót sé komið til að vera.
Dagsetning að ári verður gefin út síðar!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica