Apríl
Hvalnesfjörur jan. 2008
Hvalnesfjörur jan. 2008
Hvalnesfjörur jan. 2008
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

06.04.2008 Apríl

Fjaran og fellið

Búið er að fara tvær ferðir hjá ferðafélaginu á þessu ári. Fyrsta ferð félagsins var farin 15 mars á Hvalnesfjörur. Veðurguðirnir heilsuðu okkur nokkuð glaðleg, sólskin var og nánast logn en heldur var þó kalt. Keyrt var sem leið liggur að Hvalnesi og suður fjörurnar allt að Bæjarós. Fjaran var mjög laus og fyrir þá sem ekki eru vanir að keyra í sandi eða miklum snjó var þetta hið mesta ævintýri. Af fjörunum er hægt að virða fyrir sér fjallahringinn horna á milli þ.e.a.s. frá Vestrahorni til Eystrahorns, einnig í góðu skyggni má sjá nokkra fjallstinda í fjarska s.s. Snæfell. Svo er líka gaman að tylla sér í fjöruna og horfa á hafið og velta fyrir sér lögmálum og leyndarmálum þess .Á heimleiðinni var svo skoðað gamalt útræði frá Hvalnesi sem er rétt vestur við vitann. Af fjörunum var kíkt upp í Ófærubotn sem er skálin fyrir ofan Hvalnesbæinn í von um að sjá tvö lömb sem ekki tókst að ná áður en vetur gekk í garð. En staðurinn er talinn illfær og stórhættulegur eftir að frjósa fer á haustinn. Ekkert sást til lambanna og er talið að þau séu ekki lengur á lífi enda mikinn snjó að sjá í botninum. Alls fóru 32 í þessa ferð.
Næsta ferð var kvöldferð á Meðalfell í Nesjum . Heldur var veðrið óblítt við okkur þetta síðdegi, norðaustan stormur og éljagangur. Alls mættu þó 12 manns í þessa ferð og undir dyggri leiðsögn Þorsteins í Bjarnanesi skoðuðum við m.a. fyrsta bæjarstæðið á Meðalfelli, urðunarstað bæjarins, vatnsból, tvær fjárréttir þar sem fé úr Laxárdal og víðar úr Nesjum var réttað í, þar til núverandi fjárrétt inn á Laxárdal tók við. Sú fyrri var hlaðin úr grjóti og sést útlit hennar nokkuð vel enn, sú síðari var steypt og er öll hrunin nema hliðarstólparnir inn í almenninginn. Ekki var talið óhætt að ganga upp á fellið vegna veðurs og bíður það betri tíma.
Næsta ferð félagsins var svo að Miðfelli í Flateyjarlandi laugardaginn 5 apríl og verður fjallað um hana seinna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica