Apríl
Sívar Árni Scheving
Sívar Árni Scheving
Sívar Árni Scheving hjá Bestfisk hlaut hæsta styrkinn á Austurlandi vegna mótvægisaðgerða á sviði ferðaþjónustu.

05.04.2008 Apríl

Þrjú verkefni á Hornafirði hlutu styrk vegna mótvægisaðgerða

Styrkirnir vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009 sem auglýstir voru í janúar síðastliðinn að upphæð 160 milljónir króna hefur nú verið úthlutað til 77 verkefna víða um landið. Þrjú verkefni hér í sveitarfélaginu Hornafirði fengu styrk og voru það Bestfiskur ehf fyrir "Saltfisk-Hagleiksmiðju, kynning á saltfiskvinnslu og gjafavöru", verkefnið hlaut 4.5. millj. sem er hæsti styrkur sem veittur var á Austurlandi. Menningarmiðstöð Hornafjarðar fékk 2.0 millj. vegna verkefnisins "Munnleg hefð, miðlun sagnaarfs" og svo var það Anne Thomsen og Sæmundur Jónsson í Árbæ vegna verkefnisins "Heimavinnslan Jöklaís og ferðamannfjós" sem hlaut 1.0 millj. Alls bárust 303 umsóknir en eins og fram kom hlutu 77 styrk.

Í fréttatilkynningu kemur fram að við mat á umsóknum hafi m.a. verið tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, fjölda tonna sem skerðast, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa. Iðnaðarráðuneytið hefur falið Ferðamálastofu að gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi.

Sjá úthlutunarlista

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica