Málþing um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Síðasta fimmtudag var haldið málþing í Nýheimum um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Málþingið var haldið að frumkvæði bæjarstjórnar Hornafjarðar og Heilbrigðis ? og öldrunarráðs Hornafjarðar. Margir góðir gestir voru á þinginu og greinilegt var að mikil þörf var á málþingi sem þessu. Til stóð að Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra myndi setja málþingið en hann átti ekki heimangengt að þessu sinni. Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis flutti hins vegar ræðu ráðherra á málþinginu.
Á þinginu fluttu erindi Sigurður Guðmundsson, landlæknir, Óttar Ármannsson, formaður félags lækna á landsbyggðinni og Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu. Einnig greindi Vilborg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu málþingsgestum frá störfum ráðuneytisins í öldrunarmálum en sá málaflokkur fluttist nýverið yfir til félagsmálaráðuneytisins. Þær Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSSA, Ásgerður Gylfadóttir og Ester Þorvaldsdóttir, hjúkrunarstjórar á HSSA gerðu grein fyrir starfi stofnunarinnar.
Að loknum erindum tóku þrjár málstofur til starfa á þinginu. Málstofurnar áttu að leitast við að varpa ljósi á nokkur grundvallaratriði sem snerta heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Ein málstofan fjallaði sérstaklega um rekstrarform stofnana með sérstakri áherslu á að skýra hlutverk sveitarfélaga og ríkis, önnur fjallaði um starfsmannamál og sú þriðja um hvaða og hvernig heilbrigðisþjónustu ætti að veita á landsbyggðinni.
Mjög mikil almenn ánægja var með málþingið og fögnuðu málþingsgestir mjög þessu frumkvæði Hornfirðinga að standa fyrir málþingi sem þessu. Miðað við þær umræður sem sköpuðust á meðal málþingsgesta var ljóst að með málþinginu var verið að opna á mjög þarfa og brýna umræðu. Það kom t.d. mjög skýrt fram að e.t.v. væru stjórnmálamenn búnir að einblína of mikið á svokallað hátæknisjúkrahús í Reykjavík á meðan umræðan um þjónustuna og þjónustustigið á landsbyggðinni hefði verið vanrækt. Í máli ráðstefnugesta kom einnig mjög skýrt fram að brýnt væri að heimamenn hefðu sem mest að segja um það hvernig skipulagi þjónustunnar væri háttað í heimabyggð svo hægt væri að sníða hana sem best að staðháttum.





Skrifa athugasemd