Staða kynjanna í sveitarfélaginu Hornafirði er jöfnust af öllum sveitarfélögum á suður og austurlandi, en Hornafjörður er í fjórða sæti af öllum sveitarfélögum á landinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar, Evrópuverkefnis sem stýrt var af Jafnréttistofu, en niðurstöður þess voru kynntar á málþingi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Akureyi. Jafnréttisvogin, verkefnið heitir Tea for two á ensku, var styrkt af Evrópusambandinu, og var tilgangurinn að gera stöðu jafnréttismála sýnilega og aðgengilega almenningi.
Lesa meira