Mars
Laufey Helgadóttir
Laufey Helgadóttir
Laufey Helgadóttir á Smyrlabjörgum ásamt barnabarni sínu Helga Kristey

28.03.2008 Mars

Ferðamannatíminn í nánd

Nú er ferðamannatíminn að byrja og ekkert heyrist um hvort fjármálaringulreiðin víða um heim hafi einhver áhrif á ferðir fólks til Íslands.Fréttamaður vefsins hafði samband við Laufeyju Helgadóttur hótelstjóra á Smyrlabjörgum og spurði hana hvort eitthvað væri um afpantanir; Við höfum ekki fengið neinar afpantanir og ég hef ekki orðið vör við nein neikvæð viðbrögð í ferðaþjónustunni sagði Laufey, pantanir fyrir sumarið eru ívið meiri en áður og er meira pantað í apríl og maí t.d.kemur hópur af Rússum í apríl.
Veturinn hefur verið góður, alltaf eitthvað að gera og mikið var að gera í jólahlaðborðum, janúar og febrúar eru alltaf rólegir sem er bara mjög gott þá er hægt að gera ýmislegt sem ekki hefur gefist tími til að sinna og svo bara að geta tekið okkur smá frí og slakað á..

Nú eru rólegheitin búin hjá Laufeyju og hennar fólki og ferðatraffíkin að byrja. Búið er að ráða í nær allar stöður við hótelið, úrvalslið segir Laufey, svo það er ekkert að vanbúnaði að taka vel á móti þeim sem að garði ber.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica