Vegaframkvæmdir í sveitarfélaginu
Brúarflokkur frá Vík í Mýrdal vinnur nú að endurbótum á brúnni yfir Skaftafellsá . Settir eru nýir burðarbitar og brúargólf lagfært og breikkað lítilsháttar. Þar sem til stendur að þjóðvegur 1 verði færður neðar á sandinn var ekki farið í byggingu tvíbreiðrar brúar yfir Skaftafellsá. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að ekki hafi verið ákveðnar fleiri brúarframkvæmdir á hans svæði (frá Skeiðarársandi í Breiðdal) þó með góðri bjartsýni sé hugsanlegt að ein að þeim 30 einbreiðu brúm sem á þessari leið eru hverfi í sumar. Frá Skeiðarársandi að Höfn eru 16 einbreiðar brýr og 14 frá Höfn í Breiðdal. Ný brú yfir Fjarðará í Lóni er komin á áætlun á næsta ári.
Verið er að skoða og fara yfir athugasemdir um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót sem Vegagerðinni hefur borist eftir fjölmennan fund sem haldinn var í Nýheimum á dögunum.
Algjör einhugur var hjá heimamönnum á fundinum um að leið 3 yrði valin og menn komu með góð og gild rök fyrir því vali. Í dag eru sérfræðingar frá Vegagerðinni væntanlegir til Hornafjarðar til nánari skoðunar á leið 3 og til að gera smábreytingar á vegstæðinu, sem hlýtur að tákna það að hlustað hafi verið á röksemdir heimamanna um að velja skuli beinustu og öruggustu leiðina þ.e. leið 3.
Vinna við veginn í Hvalnesi og Þvottárskriðum er lítillega byrjuð en hefur legið niðri undanfarna daga vegna óhagstæðs tíðarfars en vinna hefst strax og til þess viðrar. Verktaki við framkvæmdir í skriðunum er Héraðsverk ehf. Sett verður grjótvörn við skriðurnar og vegurinn lagaður og sett bundið slitlag á hann. Þá á að fara að bjóða út framkvæmdir við veginn í Rauðuskriðum í Hamarsfirði og á að ljúka því verki í sumar en það verður mikil vegagerð þar sem nýr vegur kemur neðar í skriðunni. Þegar vegagerð er lokið á báðum þessum stöðum verður komið bundið slitlag á þjóðveg 1 milli Hafnar og Djúpavogs.
Reynir segir að nýr vegur yfir Öxi sé kominn í umhverfismat og stefnt sé á að verkið verði boðið út í haust. Það verður mikil samgöngubót að fá nýjan veg yfir Öxi sem hvergi verður með meiri halla á veginum en er t.d. á veginum um Fagradal en á núverandi leið eru víða mjög erfiðar brekkur.





Skrifa athugasemd