Dýpkun Hornafjarðarhafnar
Vinna við dýpkun Hornafjarðarhafnar er hafin og verður dælt upp 50 þúsund rúm. efnis.
Núna er það dýpkunarpramminn Trölli sem kominn er í gagnið eftir miklar endurbætur en hann keyptu fyrirtækin Rósaberg ehf.og Vélsmiðjan Foss af Landsvirkjun. Það var létt yfir Jóni Kjartanssyni, einum eigandanum, þegar vefurinn hafði samband við hann um borð í Trölla úti á spegilsléttri höfninni.
Þetta gengur alveg helvíti vel og við erum virkilega kátir með þetta allt sagði Jón við erum búnir að taka rúma 10 þús.rúmm. sl. viku á 60 dælutímum. Við erum aðallega tveir sem erum á prammanum og fáum svo aukamenn þegar þarf þannig að það má segja að það séu þrjú og hálft starf við þetta. Við höfum ekki verið skipulagðir með vaktir heldur tökum þetta bara eftir því sem hentar og hvernig liggur á okkur, byrjum stundum kl 5 á morgnana og höfum líka unnið alla nóttina. Afköst við dælingu eru núna 200 rúmm.á klst. en mest náðust 500 rúmm. hjá Landsvirkjun svo við vonumst til að afköstin eigi eftir að aukast
Efninu úr höfninni er dælt út í Miðós vestan við Fiskimjölsverksmiðjuna og þá er spurningin sem margir velta fyrir sér, fer þetta ekki allt inn í höfnina aftur svo dæla þurfi sama efninu burtu aftur. Trölla er ekki hægt að nota til dýpkunar fyrir utan Hornafjarðarós eða þar sem öldugangur er einhver. Við getum dælt niður á 25 m. dýpi segir Jón en hér í höfninni verður dýpið sjö og hálfur m. þetta er alveg skelfilega öflugt tæki sem gaman er að vinna með.
Kostirnir eru líka fleiri en krafturinn, þetta er umhverfisvænt tæki knúið á hreinni íslenskri orku (þ.e.rafmagni ). Við erum ekki að spúa neinni mengun út í loftið og það eina sem þarf að gera hér er að mála prammann grænan.





Skrifa athugasemd