Mars
Hótel Skaftafell
Hótel Skaftafell
Hótel Skaftafell

25.03.2008 Mars

Hótel Skaftafell opnar sem Foss-hótel

Hótel Skaftafell í Freysnesi var opnað sem Foss-hótel 1.mars sl og hefur Dóra Guðrún Ólafsdóttir í Svínafelli verið ráðin hótelstjóri. Foss-hótel hafa hótelið á leigu til þriggja ára. Á þessu ári eru tuttugu ár frá því hjónin Anna María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson hófu veitingarekstur í Freysnesi fyrst í sínu íbúðarhúsi og ári seinna var fyrsta álma hótels Skaftafells með 12 herbergi tekin í notkun, nú eru herbergin 63. Við hugsuðum okkur þetta sem lítið notalegt sveitahótel þegar við byrjuðum segir Anna María, okkur datt aldrei í hug þessi mikla pressa og svona mikil þörf fyrir gistirými hér. Þetta hefur verið annasamur tími og góður, við höfum verið heppin með starfsfólk gegnum tíðina, þetta er frábært fólk og við eigum eftir að sakna félagsskaps þess og ég vil líka geta þess að frá því fyrsta höfum við notið ómetanlegrar aðstoðar föður míns meðan hans naut við, og móður minnar sem öll þessi ár hefur hjálpað okkur á svo margan hátt.
Við héldum upp á 20 ára rekstrarafmælið með sveitungum okkar á Góuhófinu hér í Öræfum á dögunum og það var alveg yndisleg stund.

Anna María og Jón verða áfram með rekstur söluskálans og verður rekstur hans með svipuðu sniði og hann er í dag. Hafdís Gunnarsdóttir hefur séð um rekstur matstofunnar í skálanum og þar vinna 4-5 starfsmenn á vöktum.

Dóra Guðrún, er heimavön í Hótel Skaftafelli þar sem hún hefur unnið í mörg ár og hún segist hlakka til að takast á við nýja starfið. Von er á mörgum hópum einkum skólafólks á næstunni og svo fer að líða að því að fólk fjölmenni á Hvannadalshnúk eins og verið hefur síðari ár og þá er venjulega allt gistirými fullbókað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica