Mars
Nettó
Nettó
Ljúffeng afmalisterta hjá Nettó

24.03.2008 Mars

Nettó bauð til afmælisveislu í Miðbæ

Starfsfólk Nettó í Miðbæ bauð til afmælisveislu um síðustu helgi í tilefni eins árs verslunarafmælis á Höfn. Boðið var upp á ljúffenga rjómatertu, kaffi gos og margskonar góðgæti annað. Fjöldi tilboða var í gangi auk þeirra tilboða sem venjulega eru seinni hluta vikunnar. Í tilefni afmælisins afhenti Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri fulltrúum kvennakórsins 100 þús. kr. styrk frá Nettó ásamt 50 þús.kr. sem kórinn fær fyrir vinnu við vörutalningu í versluninni og félag aldraðra á Hornafirði fékk afhentar 50 þús. kr.

Fjöldi fólks kom í Miðbæinn til að fagna afmælinu og nýta sér þann afslátt sem boðið var uppá.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica