Finnar í heimsókn
Eins og margir hafa heyrt talað um á FAS í samstarfi við skóla í bænum Jämsä í Finnlandi. Samstarfið hófst í kjölfar þess að Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu var boðin þátttaka á ráðstefnu í Esbo í Finnlandi haustið 2006. Ráðstefnan var á vegum Nord plus áætlunarinnar og fjallaði meðal annars um frumkvæði og nýsköpun. Þar komust á tengsl við skólann í Jämsä og ákveðið var að vinna að verkefnum um þjóðgarða og frumkvöðlamenntun. Sótt var um styrki til að þátttakendur í verkefninu gætu heimsótt hverja aðra og fékk sú umsókn hljómgrunn. Seinni hluta september 2007 var farið í heimsókn til Finnlands og var sú ferð hin ágætasta.
Þann þriðja mars var svo komið að Finnunum að endurgjalda heimsóknina. Fyrstu nóttina dvöldu þeir í Reykjavík og á leiðinni austur á Hornafjörð komu þeir m.a. við í gróðurhúsi í Hveragerði en síðan var haldið í Skaftafell. Samstarfaðilarnir úr FAS sem nú voru í gestgjafahlutverkinu fóru á móti þeim í Skaftafell. Ekki er hægt að segja að dagurinn sá hafi hentað til ferðalaga. Finnarnir voru ríflega átta tíma frá Reykjavík og ferðalag Hornfirðingana í Freysnes tók tæpa þrjá tíma enda mikil ofankoma og töluverð ófærð.
Miðvikudaginn 5. mars var komið hið besta veður. Þá var farið í þjóðgarðinn þar sem þær Regína þjóðgarðsvörður og Hafdís starfsmaður þjóðgarðsins tóku á móti hópnum. Gengið var inn að jökli og að þessu sinni var einnig hægt að ganga út á jökulinn. Þetta var í fyrsta skiptið sem flestir Finnarnir sáu jökul með eigin augum og var það mikil upplifun að geta gengið út á ísinn og horft í gegnum hann. Úr þjóðgarðinum var haldið á Hala þar sem m.a. fiskeldið var skoðað. Þar fengum við einnig með okkur bleikjuflök sem voru grilluð um kvöldið í sumarbústaðnum hjá Eyjólfi skólameistara.
Finnski hópurinn gisti í Ásgarði þá daga sem hann dvaldi á Höfn. Fannst þeim einstakt útsýni frá gistihúsinu hvort sem var yfir höfnina eða jöklasýnin. Fimmtudaginn 6. mars hafði verið ráðgert að fara upp að Heinabergsjökli til að mæla jökulsporðinn. Veðurguðirnir sáu til þess að sú ferð var aldrei farin. Veðrið var strax slæmt um morguninn og versnaði eftir því sem á daginn leið. Finnarnir höfðu orð á því að þeir hefðu sjaldan séð annað eins illviðri. Þetta kom heimamönnum á óvart því oft þegar myndir frá Finnlandi eru skoðaðar má sjá á þeim mikinn snjó. Vissulega snjóar í Finnlandi en þá er líka yfirleitt alltaf logn. Þeir þekkja miklu fremur að þykk snjólög þekji landið en sjá sjaldan skafla eins og hafa verið hér á Hornafirði undanfarið. Þó ekki hafi verið farið upp að jökli var fengist við ýmislegt annað. T.d. voru Nýheimar skoðaðir, farið var á Jöklasýninguna og Byggðasafnið. Farið var í sund og um kvöldið var boðið upp á íslenska kjötsúpu.
Eftir óveðrið á fimmtudeginum var komið ágætis veður á föstudeginum. Þá var farið í siglingu á lóðsbátnum og gengið um bæinn. Eftir hádegi komu svo Ari frá Frumkvöðlasetrinu og Þorvarður frá Háskólasetrinu og voru með innlegg. Það sem eftir lifði dags unnu nemendur í hópum að frumkvöðlaverkefnum. Þar kviknuðu m.a. hugmyndir að nýjum atvinnugreinum eins og t.d. 1000 dýra hreindýrabú og hefðbundinn búskapur í anda ?Economusée? þar sem gestir gætu m.a. aðstoðað við búskapinn og verslað vörur frá bóndanum.
Um kvöldið var veisla i pakkhúsinu sem íslensku krakkarnir sáu um og var þar að mestu boðið upp á þjóðlegan mat. Eitthvað fannst okkur þó samsetningin á diskunum hjá Finnunum skrítin. Þannig mátti t.d. sjá salat með bjúgunum og slátrinu. Finnarnir létu sér nægja að taka myndir af sviðakjömmunum en einhverjir létu sig þó hafa það að smakka hákarlinn.
Samkvæmt veðurspá átti útlit fyrir laugardaginn að vera gott en þá var ráðgert að fara inn í Hoffell eftir hádegi. Fyrir hádegi var unnið að verkefnum í stofu. Allan morguninn snjóaði og þegar var lagt að stað inn í sveit kyngdi niður snjó. Í Hoffelli tóku þeir feðgar Sigfinnur og Dúddi á móti hópnum og færði hópurinn sig yfir í jeppa. Fyrst var komið við hjá hestunum en síðan keyrt inn að jökli og að útfallinu þar sem Austurfljótin runnu allt þangað til fyrir nokkrum mánuðum. Það var engu líkara en jökullinn væri töfrum gæddur og næði að seiða gestina. Áður en nokkur vissi af voru allir farnir að ærslast í snjókasti eða þá að búa til snjókarl sem fékk heitið ?Jomka?. Ekki spillti fyrir að ofankoma hætti og sólin braust fram úr skýjunum og skein glatt. Eftir viðkomu í Geitafelli og í grjótnáminu var Hoffellskirkja skoðuð og að lokum skelltu flestir sér í heitu pottana. Ekki spillti fyrir að Dúddi skrapp til að ná í nýbakað bakkelsi. Fríða hafði bæði bakað muffins og kleinur til að bjóða upp á. Þetta rann allt ljúflega niður enda fólk orðið svangt eftir útiveruna.
Á sunnudagsmorgninum var farið út í Stokksnes. Þangað er alltaf jafn gaman að fara með gesti hvort sem er farið er á klettana þar sem oft má sjá seli eða í sandfjöruna. Flestir í finnska hópnum voru að upplifa Atlantshafið í fyrsta skiptið. Síðasta sameiginlega máltíðin var svo á Hótel Höfn.
Áður en varði var komið að skilnaðarstundu og það reynist alltaf jafnerfitt. Það voru tár á hvarmi margra þegar kom að því að kveðjast. Eitt er þó víst að hópurinn allur er reynslunni ríkari og hefur þátttaka í þessu verkefni verið lærdómsrík og er ágætis veganesti inn í framtíðina.
Undanfarin ár hefur FAS tekið þátt í ýmis konar erlendum samskiptaverkefnum. Þegar kemur að því að fá erlenda gesti í heimsókn og sýna þeim hvað okkar svæði hefur uppá að bjóða hefur gjarnan verið leitað til ýmissa aðila í sveitarfélaginu. Það er nánast sama til hverra er leitað, fólk er boðið og búið til að aðstoða. Hvort sem er til að bjóða fólki í heimsókn eða þá jafnvel að gefa eftir aðgangseyri og fleira í þeim dúr. Þetta er okkur í FAS algjörlega ómetanlegt. Það væri erfitt að taka á móti gestum án ykkar. Kærar þakkir fyrir okkur.
Nánar má lesa um verkefnið hér á
http://www.peda.net/veraja/jkouke/mpol/kansainvalisyys/islanti/
og skoða myndir frá Íslandsferðinni http://www.peda.net/veraja/jkouke/mpol/kansainvalisyys/islanti/ice
- Hjördís Skírnisdóttir




Skrifa athugasemd