Mars
Matthías á hundasleða
Matthías á hundasleða
Matthías á hundasleða
Mynd 1 af 3
1 2 3

17.03.2008 Mars

Mikil aukning í Öræfaferðum

Fjölskyldufyrirtækið Öræfaferðir í Hofsnesi hefur vaxið og dafnað vel fyrst í umsjá Sigurðar Bjarnasonar bónda og nú Einars sonar hans og tengdadótturinnar Möttu. Nýir þættir hafa bæst inn í þá þjónustu sem þau bjóða uppá og er starfsemin virk allt árið.
Aldrei frá því útsýnisferðir í Ingólfshöfða byrjuðu árið 1991 hefur eftirspurn og pantanir verið eins margar og núna segir Einar og sl. sumar var mikil aukning frá fyrra ári. Það er að aukast svo mikið þjónusta við einstaklinga og óhefðbundna hópa eins hefur húsbíla og hjólhýsahópum stórfjölgað og til þessa hafa þetta að langmestum hluta verið útlendingar eða um 97% sem fara út í höfðann. Þetta er alveg öfugt við þá sem fara á jökulinn þar er hlutfallið 97% íslendingar.

Það er mikið að gera hjá mér framundan segir Einar, ég fer fjórar fjallaskíða-hringferðir í mars til maí þá koma hópar fjallaskíðafólks frá Ítalíu og Sviss til landsins Þessar hringferðir eru þannig að lagt er á stað frá Keflavík og ekið á Snæfellsnes skíðað á Snæfellsjökli þaðan ekið norður í Grenivík og skíðað á Hvalbak, næsti viðkomustaður er Mývatn þar er stoppað og umhverfið skoðað. Frá Mývatni er haldið í Öræfi og skíðað á Öræfajökli. Ef allt gengur samkvæmt áætlun er Eyjafjallajökull skoðaður og á leiðinni til Reykjavíkur er komið við á Gullfossi og Geysi. Ferðin tekur níu daga og hámarksfjöldi í hóp er 15 manns
Fjallaskíðaferðir eru að verða vinsælar hjá íslendingum sérstaklega þeim sem hafa gengið á Hvannadalshnúk og horft niður á allar þessar skíðabrekkur sem þaðan blasa við.

Einar ákvað sl. vor að breyta til og bjóða upp á leiðsögn í fjallaskíðaferðir í stað þessara hefðbundnu gönguferða á Hvannadalshnúk ekki síst vegna þess að það eru orðnir svo margir með ferðir á hnúkinn og því tilvalið að bjóða upp á annað og segir það fá góðar og miklar undirtektir.Þetta er góður vetur fyrir fjallaskíðaferðir miklu meiri snjór og miklu betri snjófæri neðar í fjöllum en verið hefur síðustu árin, þetta er svona eins og var fyrir 10 árum.

Í vetur hefur Einar verið víða á Austurlandi með námskeið í ísklifri og jöklagöngu einnig með ísklifur í fossum t.d. í Breiðdal, Skaftafelli og víðar í Öræfum. Ef ekki viðrar á jökulinn fer ég í íshelli í Virkisjökli segir Einar, þar er stór íshellir a.m.k. 80 m. langur, hár og mikill með þrem inngöngum. Hellirinn er fallegur en ekki nógu blár og tær af því hann er í urðarrananum og því ekki næg birta í honum. Á þessum árstíma er alltaf hægt að finna íshella hér og oft eru þeir bláir og tærir en misjafnt hve góð aðkoma er að þeim.

Við erum að koma okkur upp sleðahundum og vonumst til að geta boðið upp á hundasleðaferðir segir Einar, þetta er allt í uppbyggingu við höfum verið með tvo hunda og látið þá draga okkur á skíðum og sleðum í allan vetur og þannig æft bæði okkur sjálf og hundana. Aron sonur okkar er á Ítalíu þar sem hann vinnur við fjölskylduskóla og fer með fólk í hundasleðaferðir og er það góð reynsla fyrir hann sem hann getur nýtt sér hér heima.

Skemmtilegt vidoeskot af Matthíasi á hundasleðanum

Öræfaferðir byrjuðu sl. sumar að bjóða uppá kajakaferðir, ekki svona niður flúðir og beljandi straumköst heldur ferðir fyrir fjölskylduna, fólk á öllum aldri. Hægt er að byrja á bæjarlæknum við Hofsnes og fara eftir honum út á stærra vatnsfall sem heitir Landáll og er þetta allt um 15 km löng leið. Það er Aron sem aðallega stendur fyrir kajakaferðunum og hann á heiðurinn af því að þróa þessar ferðir með aðstoð vina sinna og undir góðri leiðsögn foreldranna .


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica