Mars
Öræfajökull
Öræfajökull
Öræfajökull og Jökulsárlón

14.03.2008 Mars

Bæjarráð harmar ákvörðun um starfsstöð framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var í gær var lögð fram eftirfarandi bókun "Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að starfsstöð framkvæmdastjóra yfirstjórnarinnar verði í Reykjavík. Innan yfirstjórnarinnar reyndist ekki vera pólitískur vilji fyrir því að starfsstöð framkvæmdastjórans yrði á Hornafirði eins og bæjarstjórn Hornafjarðar hefur barist fyrir síðan umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hófst. Einnig lýsir bæjarstjórn yfir undrun sinni á því að fyrsta starfið sem auglýst er án staðsetningar ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skuli enda á höfuðborgarsvæðinu. Það vinnur gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um eflingu atvinnulífs á landsbyggðinni í gegnum störf án staðsetningar."

Sjá fundargerð bæjarstjórnar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica