Gott þing hjá USÚ
Í kvöld lauk 75. þingi USÚ, þingið var fjölmennt og voru fulltrúar mættir frá öllum aðildarfélögunum. Gestir þingsins voru Helga Guðjónsdóttir formaður UMFÍ, Sigríður Jónsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Sæmundur Runólfsson framkvæmdarstjóri UMFÍ. Þingfulltrúar og gestir voru sammála um að síðasta ár hafi verið gott ár og stendur þar hæst unglingalandsmótið sem haldið var hér um verslunarmannahelgina og var okkur Hornfirðingum öllum til sóma. Breytingar urðu á stjórn USÚ, Jóhanna Kristjánsdóttir hætti í stjórn og inn kom Þórhalla Magnúsdóttir, Ragnhildur Einarsdóttir og Kjartan Hreinsson voru endurkjörin.
Helga Guðjónsdóttir formaður UMFÍ sæmdi Ragnhildi Einarsdóttur formann USÚ starfsmerki UMFÍ.





Skrifa athugasemd