Hrafn Eiríksson og félagar unnu forritunarkeppni framhaldsskólanna
Um nýliðna helgi fór forritunarkeppni framhaldsskólanna fram í Háskólanum í Reykjavík. Þetta er í sjöunda skiptið sem að keppnin fer fram. Núna voru 87 keppendur í 29 liðum sem tóku þátt. Keppninni er skipt í þrjár deildir eftir því hversu langt nemendur er komnir í forritun. Einn nemandi úr FAS tók þátt í keppninni að þessu sinni. Það var Hrafn Eiríksson. Síðustu vikuna var hann reyndar önnum kafinn í öðru en hann er einn þátttakenda í samstarfsverkefni sem skólinn á í við Finnland og finnsku gestirnir voru einmitt í heimsókn þá. Hrafn skrapp frá á laugardaginn til að taka þátt í forritunarkeppninni. Var hann í liði með Hinriki Erni Sigurðssyni frá FÁ og Tuma Steingrímssyni frá ME. Þeir voru í α-deildinni sem er fyrir þá sem eru lengst komnir í forritun. Þessir piltar höfðu allir áhuga á því að taka þátt í keppninni en höfðu ekki lið í sínum skóla. HR kom þeim saman í lið.
Það er skemmst frá því að segja að þeir félagar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu efstu deildina. Til mikils var að vinna því fyrstu verðlaun eru frí skólagjöld í HR fyrstu önnina að upphæð 137.000. Þar að auki voru peningaverðlaun frá SKÝRR og gjafabréf frá Microsoft upp á forritið Visual Studio 2008. Þessi verðlaun koma sér vel því Hrafn er löngu búinn að ákveða að fara í Háskólann í Reykjavík að loknu stúdentsprófi.
Þetta er glæsilegur árangur hjá okkar manni - til lukku Hrafn!
www.fas.is





Skrifa athugasemd