Mars
Fundargestir
Fundargestir
Fundargestir
Mynd 1 af 3
1 2 3

11.03.2008 Mars

Fræðslufundur um málefni eldri borgara

Fræðslufundur um málefni eldri borgara var haldinn í fundarsal Ekru sl. föstudagskvöld. Á fundinn mættu Helgi Hjálmsson formaður Landsambands eldri borgara (LEB) og Borgþór Kærnested framkvæmdastjóri LEB en þeir eru á ferð um landið og kynna starfsemi landsambandsins. Helgi lýsti baráttunni við þingmennina og ríkisvaldið um baráttu LEB fyrir bættum kjörum eldri borgara og sagði; við höfum unnið markvisst að því að fá lagaða þessa tryggingalöggjöf sem er í gildi hjá okkur og enginn skilur. Því miður veldur það því að margir vita ekki sinn rétt og verða af bótum og öðru sem þeir eiga rétt á. Vegna þessa höfum við lagt ríka áherslu á að lög um málefni eldri borgara og lög um Tryggingastofnun Ríkisins að þau verði endurskoðuð alveg frá grunni því núverandi löggjöf er óskiljanleg og alls ekki réttlát.
Við höfum reynt að hafa áhrif á þá sem stjórna landinu og höfum verið á fundum með núverandi heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra. Áður en við fórum af stað í þessar fundarferðir hittum við Geir Haarde forsætisráðherra ræddum við hann og létum hann hafa þær kröfur sem við erum með en við teljum að í framhaldi af nýgerðum kjarasamningum sem nú hefur verið skrifað undir að við eldri borgarar eigum skilyrðislaust að fá þær bætur sem þau lægst launuðu fá þ.e. 18 þús. kr. á mánuði.
Við eigum að fá þann kjaramálapakka sem dugir hverjum og einum til eðlilegrar framfærslu sem talað er um að sé um 220 þúsund á mánuði en í dag eru 11-12 þúsund manns sem fá 130 þús. á mánuði og þurfa að borga um 30 þúsund af því í skatt og hundrað .þúsundin sem þá eru eftir duga engan veginn fyrir framfærslu fólksins á því nauðsynlegasta hvað þá einhverju umfram það.

Margt fleira fróðlegt höfðu þeir Helgi og Borgþór fram að færa og svöruðu þeir fyrirspurnum fundargesta, einnig lögðu þeir áherslu á að þeir vonuðust eftir að fólk hefði samband við þá ef upp kæmu vandamál í sambandi við tryggingarmál eða annað slíkt. Gagnlegar upplýsingar fyrir eldri borgara er að finna á heimasíðu landsambandsins http://www.leb.is/ og netfang þess er leb@leb.is


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica