Mars
SAS_Þota
SAS_Þota
Millilandaflug

08.03.2008 Mars

Millilandaflug á Hornafirði?

Hjalti Þór Vignisson blog

Í janúar 2008 skilaði flugvalla- og leiðsögusvið Flugstoða greinargerð um ráðstafanir og kostnað við að færa flugvellina á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Höfn úr flokknum lendingarstað í flokk I, þannig að þessir flugvellir geti þjónað millilandaflugi. Greinargerðin var unnin að frumkvæði samgönguráðherra í kjölfar fundar hans með bæjarstjórn Hornafjarðar þann 14. nóvember 2007. Í greinargerðinni kemur fram að gerðar eru miklar kröfur til flugvalla sem þjóna eigi millilandaflugi. Þrjár reglugerðir ná yfir starfsemina, ein er varðar mannvirki, önnur sem tekur á gæða- og öryggisstjórnarkerfum og sú þriðja á flugvernd.

Til að fullnægja þeim skilyrðum sem sett eru fram í þessum reglugerðum þarf að ráðast í stofnkostnað vegna öryggisvæða umhverfis völlinn, kaup á vopnaleitarbúnaði, þjálfun starfsfólks, breytingar á aðstöðu o.fl. Einnig þarf að bæta við mannafla miðað við núverandi ástand til að tryggja kröfur um flugvernd og gæða- og öryggismál.

Upp úr stendur eftir lestur greinargerðarinnar að það er vel framkvæmanlegt að gera Hornafjarðarflugvöll að millilandaflugvelli. Aukin rekstrarkostnaður er talin vera 4,8 m.kr. en færa má rök fyrir því að hægt sé að ná þeim kostnaði verulega niður með samnýtingu á starfsfólki með öðrum stofnunum. Um þann möguleika ræddi bæjarráð Hornafjarðar við samgönguráðherra á fundi þann 28. febrúar sl. Stofnkostnaður er ekki umtalsverður og hann er alls 128 m.kr. ef öllum kröfum á að vera fullnægt. Hægt er að komast af með mun minni stofnkostnað ef kröfurnar eru einungis þær að flugvöllurinn geti þjónað sambærilegum flugvélum og hafa komið hingað undanfarin ár í ferju- og leiguflugi.

Bæjarráð Hornafjarðar fundaði með Flugstoðum, samgönguráðherra og þingmönnum Suðurkjördæmis um þessi mál í fundarferð dagana 27. - 29. febrúar sl. Málinu verður haldið til streitu áfram enda leiðir greinargerðin það í ljós að endurbætur og ráðstafanir á Hornafjarðarflugvelli eru mun kostnaðarminni en endurbætur bæði á Ísafirði og Vestmannaeyjum. Auk þess er nauðsynlegt að Hornafjarðarflugvöllur sé opinn fyrir alþjóðaflugi, legunnar vegna.

http://www.hjaltithor.blog.is/blog/hjaltithor/

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica