Mars
Finnar á Þóerbergssetri
Finnar á Þóerbergssetri
Nemendur og kennarar frá Finnlandi litu við á Þórbergssetri (Mynd FAS)

06.03.2008 Mars

Finnskir nemendur og kennarar frá Jämsä í heimsókn í FAS

Þessa dagana eru átta finnskir nemendur og þrír kennarar frá bænum Jämsä í heimsókn í FAS. Heimsókn þessi er liður í samstarfsverkefni sem skólarnir eiga í um þjóðgarða og frumkvöðlafræði. Finnarnir komu til landsins á mánudag og munu dvelja hér í viku. Það er nú ekki hægt að segja að veðurguðirnir tækju vel á móti Finnunum því á þriðjudag þegar þeir keyrðu í Skaftafell hrepptu þeir slæmt veður. Ferðalag þeirra frá Reykjvík til Skaftafells tók um 8 klukkustundir. Móttökunefnd úr FAS fór á móts við Finnana í Skaftafell og tók sú ferð um þrjá tíma.

Í gær voru veðurguðirnir þó í essinu sínu og þjóðgarðurinn skartaði sínu fegursta. Þar var m.a. farið í gönguferð inn að Skaftafellsjökli. Á leiðinni heim var komið við á Hala og fiskeldið skoðað þar sem meðfylgjandi mynd var tekin við Þórbergssetur.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica