Mars
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins
Drengir í Heppuskóla njota augnabliksins (úr myndasafni Heppuskóla)

01.03.2008 Mars

Kökusala hjá unglingunum í dag

Í dag laugardag kl.14:00 verður kökubasar í NÝHEIMUM hjá unglingum í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni sem eru að fara á Samféshátíð í Laugardalshöllinni um næstu helgi. Með sölunni eru þau að afla sér fjár til ferðarinnar. Þau ætla líka að synda áheitasund um helgina til fjáröflunar. Á Samféshátíðinni koma saman unglingar frá félagsmiðstöðvum um land allt og er Þrykkjan þar ekki undanskilin. Það er ávallt mikið fjör og stemning á hátíðinni sem hefst með stórballi með vinsælustu hljómsveitum landsins og einng fer fram Söngvakeppni Samfés. Það má því reikna með að kátt verði í Höllinni þessa helgi. Þetta er árlegur viðburður í starfi Samfés sem er Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi og hafa unglingar úr Þrykkjunni ávallt farið á hátíðina.

Fólk er hvatt til að koma við í Nýheimum og kaupa sér góðar köku til að hafa með Norðurljósablúsnum og leggja unglingunum lið. Með þökk fyrir góðar undirtektir við áheitasundið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica