Mars
Góuhóf 2008
Góuhóf 2008
Séð yfir salinn. (Mynd PWK)
Mynd 4 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

09.03.2008 Mars

Um 200 manns mættu á Góuhóf í Öræfum

Laugardagskvöldið 1. mars síðastliðinn var haldið hið árlega Góuhóf í Hofgarði í Öræfum. Vinsældir þessarar samkomu hafa verið miklar undanfarin ár og var engin breyting þar á þetta árið og komust færri að en vildu. Um 200 manns snæddu veislumat sem bræðurnir Andri og Benedikt Jónssynir framreiddu af sinni einskæru list. Hljómsveit kvöldsins var Nefndin og stjórnuðu þeir fjöldasöng yfir borðhaldinu, Guðmundur Einarsson fyrrum þingmaður og smaladrengur í Svínafelli var gestur kvöldsins og fór hann með nokkur orð að borðhaldi loknu. Þegar Guðmundur hafði lokið máli sínu voru flutt heimagerð skemmtiatriði sem samin voru og flutt af Góunefndinni 2008 sem samanstóð af heimamönnum og brott fluttum Öræfingum.

Hljómsveitin Nefndin hélt svo uppi fjörinu og lék fyrir dansi að skemmtiatriðum loknum fram eftir nóttu.

Í Góunefnd 2008 voru:

  • Annar María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson
  • Hafdís Roysdóttir og Jóhann Þorsteinsson
  • Björgvin Óskar Sigurjónsson og Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
  • Eva Bjarnadóttir og Jónína Guðbjörg Aradóttir
  • Þorlákur Magnússon
  • Unnur Bjarndóttir

Í Góunefnd 2009 eru:

  • Sigrún Sigurgeirsdóttir og Guðmundur Þorsteinsson
  • Pálína Þorsteinsdóttir og Ólafur Sigurðsson
  • Regína Hreinsdóttir og Klaus Kretzer
  • Hrefna Arnardóttir og Magni Mortensen
  • Dóra Guðrún Ólafsdóttir
  • Sigurður Gunnarsson

Svo er bara að tryggja sér miða í tíma á næsta Góuhóf.

 

Myndasafn


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica