Í kjölfar frétta undanfarið um ráðningu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, auglýsingar eftir sumarstarfsfólki og svo ályktun bæjarráðs um staðsetningu framkvæmdastjórans hafði blaðamaður hjá hornafirði.is samband við nýskipaðan framkvæmdastjóra, Þórð H. Ólafsson, en þá var hann nýkominn af fundi í Ásbyrgi.
Hann var spurður um stöðu þjóðgarðsins núna og starfið framundan. Einnig var hann spurður um staðsetningu framkvæmdastjóra, hvort hann yrði með vinnuaðstöðu á fleiri en einum stað og hvað hann myndi vilja sjálfur.
Hér á eftir birtist viðtalið í heild sinni.
"Vatnajökulsþjóðgarður verður spennandi og töfrandi verkefni. Þetta er stórt og mikið og ef allt gengur upp verður hér til stærsti þjóðgarður í Evrópu.
Það sem er framundan má segja að sé í ákveðnum skorðum. Við styðjumst við sameiginlega niðurstöðu úr mikilli vinnu sem var lögð í undirbúning og endaði í skýrslu ráðgjafanefndar, sem gefin var út haustið 2006. Þar eru lagðar línurnar um uppbygginguna fyrstu fimm árin, á hverju verður byrjað og hvar.
Lesa meira