Mars

Mótmæli á Höfn

Sýndu samstöðu með því að loka þjóðvegi 1 við Höfn - 31.03.2008 Mars

Umferðatöf varð við Lónsvegamót frá kl 16.45 til 17.10 þar sem nokkrir ökumenn höfðu lokað veginum um vegamótin með ökutækjum sínum. Við viljum með þessu sýna flutningabílstjórum samstöðu í mótmælum þeirra á því okurverði sem orðið er á olíu og bensíni, mál sem snertir okkur öll, og krefjast þess að stjórnvöld taki á málinu og lækki verðið sagði Kristjana Jensdóttir leigubílstjóri á Höfn. Fátt var þarna um flutningabíla á þessum tíma dags en nokkur bílaröð myndaðist út frá vegamótunum til allra átta og sýndu flestir skilning og samstöðu á lokun vegarins. Lesa meira
 
Halldór Halldórsson

Býður upp á nýbreytni í eftirréttavali á Hótel Höfn - 29.03.2008 Mars

Nýjasti matreiðslumeistarinn á Hótel Höfn Halldór Halldórsson, þykir bjóða upp á marga og skemmtilega nýja rétti og meðal þeirra eru eftirréttir sem eru tilbrigði við rúgbrauð, þ.e. þetta venjulega sem hægt er að kaupa út í búð og hjá Jóni Bakara. Í Fréttablaðinu í dag eru birtar nokkrar af uppskriftum Halldórs sem vert er að prufa. Þær koma hér á eftir. Lesa meira
 
Laufey Helgadóttir

Ferðamannatíminn í nánd - 28.03.2008 Mars

Nú er ferðamannatíminn að byrja og ekkert heyrist um hvort fjármálaringulreiðin víða um heim hafi einhver áhrif á ferðir fólks til Íslands.Fréttamaður vefsins hafði samband við Laufeyju Helgadóttur hótelstjóra á Smyrlabjörgum og spurði hana hvort eitthvað væri um afpantanir. Við höfum ekki fengið neinar afpantanir og ég hef ekki orðið vör við nein neikvæð viðbrögð í ferðaþjónustunni sagði Laufey, pantanir fyrir sumarið eru ívið meiri en áður og er meira pantað í apríl og maí t.d.kemur hópur af Rússum í apríl. Lesa meira
 
Brúarframkvæmdir

Vegaframkvæmdir í sveitarfélaginu - 27.03.2008 Mars

Brúarflokkur frá Vík í Mýrdal vinnur nú að endurbótum á brúnni yfir Skaftafellsá . Settir eru nýir burðarbitar og brúargólf lagfært og breikkað lítilsháttar. Þar sem til stendur að þjóðvegur 1 verði færður neðar á sandinn var ekki farið í byggingu tvíbreiðrar brúar yfir Skaftafellsá. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að ekki hafi verið ákveðnar fleiri brúarframkvæmdir á hans svæði (frá Skeiðarársandi í Breiðdal) þó með góðri bjartsýni sé hugsanlegt að ein að þeim 30 einbreiðu brúm sem á þessari leið eru hverfi í sumar. Frá Skeiðarársandi að Höfn eru 16 einbreiðar brýr og 14 frá Höfn í Breiðdal. Ný brú yfir Fjarðará í Lóni er komin á áætlun á næsta ári. Lesa meira
 
Dýpkun í höfninni

Dýpkun Hornafjarðarhafnar - 26.03.2008 Mars

Vinna við dýpkun Hornafjarðarhafnar er hafin og verður dælt upp 50 þúsund rúm. efnis. Núna er það dýpkunarpramminn Trölli sem kominn er í gagnið eftir miklar endurbætur en hann keyptu fyrirtækin Rósaberg ehf.og Vélsmiðjan Foss af Landsvirkjun. Það var létt yfir Jóni Kjartanssyni, einum eigandanum, þegar vefurinn hafði samband við hann um borð í Trölla úti á spegilsléttri höfninni. Þetta gengur alveg helvíti vel og við erum virkilega kátir með þetta allt sagði Jón við erum búnir að taka rúma 10 þús.rúmm. sl. viku á 60 dælutímum. Við erum aðallega tveir sem erum á prammanum og fáum svo aukamenn þegar þarf þannig að það má segja að það séu þrjú og hálft starf við þetta. Við höfum ekki verið skipulagðir með vaktir heldur tökum þetta bara eftir því sem hentar og hvernig liggur á okkur, byrjum stundum kl 5 á morgnana og höfum líka unnið alla nóttina. Afköst við dælingu eru núna 200 rúmm.á klst. en mest náðust 500 rúmm. hjá Landsvirkjun svo við vonumst til að afköstin eigi eftir að aukast Lesa meira
 
Hótel Skaftafell

Hótel Skaftafell opnar sem Foss-hótel - 25.03.2008 Mars

Hótel Skaftafell í Freysnesi var opnað sem Foss-hótel 1.mars sl og hefur Dóra Guðrún Ólafsdóttir í Svínafelli verið ráðin hótelstjóri. Foss-hótel hafa hótelið á leigu til þriggja ára. Á þessu ári eru tuttugu ár frá því hjónin Anna María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson hófu veitingarekstur í Freysnesi fyrst í sínu íbúðarhúsi og ári seinna var fyrsta álma hótels Skaftafells með 12 herbergi tekin í notkun, nú eru herbergin 63. Við hugsuðum okkur þetta sem lítið notalegt sveitahótel þegar við byrjuðum segir Anna María, okkur datt aldrei í hug þessi mikla pressa og svona mikil þörf fyrir gistirými hér. Þetta hefur verið annasamur tími og góður, við höfum verið heppin með starfsfólk gegnum tíðina, þetta er frábært fólk og við eigum eftir að sakna félagsskaps þess og ég vil líka geta þess að frá því fyrsta höfum við notið ómetanlegrar aðstoðar föður míns meðan hans naut við, og móður minnar sem öll þessi ár hefur hjálpað okkur á svo margan hátt. |nl|Við héldum upp á 20 ára rekstrarafmælið með sveitungum okkar á Góuhófinu hér í Öræfum á dögunum og það var alveg yndisleg stund. Lesa meira
 
Nettó

Nettó bauð til afmælisveislu í Miðbæ - 24.03.2008 Mars

Starfsfólk Nettó í Miðbæ bauð til afmælisveislu um síðustu helgi í tilefni eins árs verslunarafmælis á Höfn. Boðið var upp á ljúffenga rjómatertu, kaffi gos og margskonar góðgæti annað. Fjöldi tilboða var í gangi auk þeirra tilboða sem venjulega eru seinni hluta vikunnar. Í tilefni afmælisins afhenti Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri fulltrúum kvennakórsins 100 þús. kr. styrk frá Nettó ásamt 50 þús.kr. sem kórinn fær fyrir vinnu við vörutalningu í versluninni og félag aldraðra á Hornafirði fékk afhentar 50 þús. kr. Lesa meira
 
Þórður Ólafsson

“Það er mikill metnaður og góður vilji stjórnvalda að standa vel að uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs” - 22.03.2008 Mars

Í kjölfar frétta undanfarið um ráðningu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, auglýsingar eftir sumarstarfsfólki og svo ályktun bæjarráðs um staðsetningu framkvæmdastjórans hafði blaðamaður hjá hornafirði.is samband við nýskipaðan framkvæmdastjóra, Þórð H. Ólafsson, en þá var hann nýkominn af fundi í Ásbyrgi. Hann var spurður um stöðu þjóðgarðsins núna og starfið framundan. Einnig var hann spurður um staðsetningu framkvæmdastjóra, hvort hann yrði með vinnuaðstöðu á fleiri en einum stað og hvað hann myndi vilja sjálfur. Hér á eftir birtist viðtalið í heild sinni. "Vatnajökulsþjóðgarður verður spennandi og töfrandi verkefni. Þetta er stórt og mikið og ef allt gengur upp verður hér til stærsti þjóðgarður í Evrópu.
Það sem er framundan má segja að sé í ákveðnum skorðum. Við styðjumst við sameiginlega niðurstöðu úr mikilli vinnu sem var lögð í undirbúning og endaði í skýrslu ráðgjafanefndar, sem gefin var út haustið 2006. Þar eru lagðar línurnar um uppbygginguna fyrstu fimm árin, á hverju verður byrjað og hvar. Lesa meira
 
Finnar í heimsókn

Finnar í heimsókn - 18.03.2008 Mars

Eins og margir hafa heyrt talað um á FAS í samstarfi við skóla í bænum Jämsä í Finnlandi. Samstarfið hófst í kjölfar þess að Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu var boðin þátttaka á ráðstefnu í Esbo í Finnlandi haustið 2006. Ráðstefnan var á vegum Nord plus áætlunarinnar og fjallaði meðal annars um frumkvæði og nýsköpun. Þar komust á tengsl við skólann í Jämsä og ákveðið var að vinna að verkefnum um þjóðgarða og frumkvöðlamenntun. Sótt var um styrki til að þátttakendur í verkefninu gætu heimsótt hverja aðra og fékk sú umsókn hljómgrunn. Seinni hluta september 2007 var farið í heimsókn til Finnlands og var sú ferð hin ágætasta. Lesa meira
 
Matthías á hundasleða

Mikil aukning í Öræfaferðum - 17.03.2008 Mars

Fjölskyldufyrirtækið Öræfaferðir í Hofsnesi hefur vaxið og dafnað vel fyrst í umsjá Sigurðar Bjarnasonar bónda og nú Einars sonar hans og tengdadótturinnar Möttu. Nýir þættir hafa bæst inn í þá þjónustu sem þau bjóða uppá og er starfsemin virk allt árið. |nl|Aldrei frá því útsýnisferðir í Ingólfshöfða byrjuðu árið 1991 hefur eftirspurn og pantanir verið eins margar og núna segir Einar og sl. sumar var mikil aukning frá fyrra ári. Það er að aukast svo mikið þjónusta við einstaklinga og óhefðbundna hópa eins hefur húsbíla og hjólhýsahópum stórfjölgað og til þessa hafa þetta að langmestum hluta verið útlendingar eða um 97% sem fara út í höfðann. Þetta er alveg öfugt við þá sem fara á jökulinn þar er hlutfallið 97% íslendingar. Lesa meira
 
Öræfajökull

Bæjarráð harmar ákvörðun um starfsstöð framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs - 14.03.2008 Mars

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var í gær var lögð fram eftirfarandi bókun "Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að starfsstöð framkvæmdastjóra yfirstjórnarinnar verði í Reykjavík. Innan yfirstjórnarinnar reyndist ekki vera pólitískur vilji fyrir því að starfsstöð framkvæmdastjórans yrði á Hornafirði eins og bæjarstjórn Hornafjarðar hefur barist fyrir síðan umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hófst. Einnig lýsir bæjarstjórn yfir undrun sinni á því að fyrsta starfið sem auglýst er án staðsetningar ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skuli enda á höfuðborgarsvæðinu. Það vinnur gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um eflingu atvinnulífs á landsbyggðinni í gegnum störf án staðsetningar." Lesa meira
 
Þing ÚSÚ 2008

Gott þing hjá USÚ - 14.03.2008 Mars

Í kvöld lauk 75. þingi USÚ, þingið var fjölmennt og voru fulltrúar mættir frá öllum aðildarfélögunum. Gestir þingsins voru Helga Guðjónsdóttir formaður UMFÍ, Sigríður Jónsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Sæmundur Runólfsson framkvæmdarstjóri UMFÍ. Þingfulltrúar og gestir voru sammála um að síðasta ár hafi verið gott ár og stendur þar hæst unglingalandsmótið sem haldið var hér um verslunarmannahelgina og var okkur Hornfirðingum öllum til sóma. Breytingar urðu á stjórn USÚ, Jóhanna Kristjánsdóttir hætti í stjórn og inn kom Þórhalla Magnúsdóttir, Ragnhildur Einarsdóttir og Kjartan Hreinsson voru endurkjörin. Lesa meira
 
Hrafn Eiríksson

Hrafn Eiríksson og félagar unnu forritunarkeppni framhaldsskólanna - 11.03.2008 Mars

Um nýliðna helgi fór forritunarkeppni framhaldsskólanna fram í Háskólanum í Reykjavík. Þetta er í sjöunda skiptið sem að keppnin fer fram. Núna voru 87 keppendur í 29 liðum sem tóku þátt. Keppninni er skipt í þrjár deildir eftir því hversu langt nemendur er komnir í forritun. Einn nemandi úr FAS tók þátt í keppninni að þessu sinni. Það var Hrafn Eiríksson. Síðustu vikuna var hann reyndar önnum kafinn í öðru en hann er einn þátttakenda í samstarfsverkefni sem skólinn á í við Finnland og finnsku gestirnir voru einmitt í heimsókn þá. Hrafn skrapp frá á laugardaginn til að taka þátt í forritunarkeppninni. Var hann í liði með Hinriki Erni Sigurðssyni frá FÁ og Tuma Steingrímssyni frá ME. Þeir voru í α-deildinni sem er fyrir þá sem eru lengst komnir í forritun. Þessir piltar höfðu allir áhuga á því að taka þátt í keppninni en höfðu ekki lið í sínum skóla. HR kom þeim saman í lið. Lesa meira
 
Þórður Ólafsson

Ráðinn framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs - 11.03.2008 Mars

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráða Þórð H. Ólafsson í starf framkvæmdastjóra þjóðgarðsins. Þórður lauk prófi í efna- og rekstrartæknifræði frá tækniháskólanum í Osló árið 1976. Að námi loknu starfaði hann hjá Landsvirkjun til ársins 1984, síðan sem framkvæmdastjóri, fyrst hjá Íslandslaxi hf. og svo Lindalaxi hf., á árunum 1984 til 1990. Þórður vann sem ráðgjafi hjá Framkvæmdasjóði í tvö ár, þar til hann réðst til umhverfisráðuneytisins 1992, þar sem hann hefur starfað síðan, lengst af sem skrifstofustjóri fjármála og rekstrar. Lesa meira
 
Þessir strákar njóta sín

Snjórinn á undanhaldi - 11.03.2008 Mars

Veðurblíða var á Hornafirði um helgina og snjóföl yfir öllu. Hvort sem það var nú fyrir þátttöku í almennu heilsuátaki eða bara útivistarlöngun bæjarbúa lögðu óvenju margir leið sína um gönguleiðir í nágrenni bæjarins. Börnin notuðu sér snjóhaugana sem ýtt hafði verið af götum og gangstéttum og suma mátti nota til að búa til snjóhús. En, því miður fyrir krakkana, þá er ekki útlit fyrir að snjóinn haldi lengur, það er spáð rigningu Lesa meira
 
Fundargestir

Fræðslufundur um málefni eldri borgara - 11.03.2008 Mars

Fræðslufundur um málefni eldri borgara var haldinn í fundarsal Ekru sl. föstudagskvöld. Á fundinn mættu Helgi Hjálmsson formaður Landsambands eldri borgara (LEB) og Borgþór Kærnested framkvæmdastjóri LEB en þeir eru á ferð um landið og kynna starfsemi landsambandsins. Helgi lýsti baráttunni við þingmennina og ríkisvaldið um baráttu LEB fyrir bættum kjörum eldri borgara og sagði; við höfum unnið markvisst að því að fá lagaða þessa tryggingalöggjöf sem er í gildi hjá okkur og enginn skilur. Því miður veldur það því að margir vita ekki sinn rétt og verða af bótum og öðru sem þeir eiga rétt á. Vegna þessa höfum við lagt ríka áherslu á að lög um málefni eldri borgara og lög um Tryggingastofnun Ríkisins að þau verði endurskoðuð alveg frá grunni því núverandi löggjöf er óskiljanleg og alls ekki réttlát. Lesa meira
 
Góuhóf 2008

Um 200 manns mættu á Góuhóf í Öræfum - 09.03.2008 Mars

Laugardagskvöldið 1. mars síðastliðinn var haldið hið árlega Góuhóf í Hofgarði í Öræfum. Vinsældir þessarar samkomu hafa verið miklar undanfarin ár og var engin breyting þar á þetta árið og komust færri að en vildu. Um 200 manns snæddu veislumat sem bræðurnir Andri og Benedikt Jónssynir framreiddu af sinni einskæru list. Hljómsveit kvöldsins var Nefndin og stjórnuðu þeir fjöldasöng yfir borðhaldinu, Guðmundur Einarsson fyrrum þingmaður og smaladrengur í Svínafelli var gestur kvöldsins og fór hann með nokkur orð að borðhaldi loknu. Þegar Guðmundur hafði lokið máli sínu voru flutt heimagerð skemmtiatriði sem samin voru og flutt af Góunefndinni 2008 sem samanstóð af heimamönnum og brott fluttum Öræfingum. Lesa meira
 
SAS_Þota

Millilandaflug á Hornafirði? - 08.03.2008 Mars

Í janúar 2008 skilaði flugvalla- og leiðsögusvið Flugstoða greinargerð um ráðstafanir og kostnað við að færa flugvellina á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Höfn úr flokknum lendingarstað í flokk I, þannig að þessir flugvellir geti þjónað millilandaflugi. Greinargerðin var unnin að frumkvæði samgönguráðherra í kjölfar fundar hans með bæjarstjórn Hornafjarðar þann 14. nóvember 2007. Í greinargerðinni kemur fram að gerðar eru miklar kröfur til flugvalla sem þjóna eigi millilandaflugi. Þrjár reglugerðir ná yfir starfsemina, ein er varðar mannvirki, önnur sem tekur á gæða- og öryggisstjórnarkerfum og sú þriðja á flugvernd. Lesa meira
 
Finnar á Þóerbergssetri

Finnskir nemendur og kennarar frá Jämsä í heimsókn í FAS - 06.03.2008 Mars

Þessa dagana eru átta finnskir nemendur og þrír kennarar frá bænum Jämsä í heimsókn í FAS. Heimsókn þessi er liður í samstarfsverkefni sem skólarnir eiga í um þjóðgarða og frumkvöðlafræði. Finnarnir komu til landsins á mánudag og munu dvelja hér í viku. Það er nú ekki hægt að segja að veðurguðirnir tækju vel á móti Finnunum því á þriðjudag þegar þeir keyrðu í Skaftafell hrepptu þeir slæmt veður. Ferðalag þeirra frá Reykjvík til Skaftafells tók um 8 klukkustundir. Móttökunefnd úr FAS fór á móts við Finnana í Skaftafell og tók sú ferð um þrjá tíma. Lesa meira
 
Hornafjörður í tungsljósi

Þing um nýsköpun í atvinnumálum og umhverfisvæna framtíðarsýn - 04.03.2008 Mars

Laugardaginn 8. mars nk. efna Framtíðarlandið og Nýheimar til Austurþings. Á þingunum er áherslan lögð á nýsköpun í atvinnumálum og umhverfisvæna framtíðarsýn. Á þinginu verður stefnt saman hugmyndaríku og kraftmiklu fólki úr atvinnulífi, menningu og nýsköpun. Fyrirlesarar eru ýmist heimamenn eða utanaðkomandi en allir eiga þeir það sameiginlegt að láta sig framtíð landsbyggðarinnar varða, þ.m.t. atvinnumál, menntun og almenn lífsgæði. Í upphafi þingsins verður einkum lögð áhersla á sérstöðu svæðisins og tækifærin sem þar búa, svo og þann lærdóm sem draga má af uppbyggingu þekkingar- og nýsköpunarstarfs sl. 5-6 ár í kringum Nýheima. Einng verður rætt um þróun Nýheima í nánustu framtíð, um möguleika á útrás Nýheima-hugmyndarinnar til annarra sambærilegra samfélaga á landsbyggðinni og um þekkingarmiðstöðvar eins og Nýheima sem boðbera nýrrar hugsunar í byggðamálum. Lesa meira
 
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins

Kökusala hjá unglingunum í dag - 01.03.2008 Mars

Í dag laugardag kl.14:00 verður kökubasar í NÝHEIMUM hjá unglingum í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni sem eru að fara á Samféshátíð í Laugardalshöllinni um næstu helgi. Með sölunni eru þau að afla sér fjár til ferðarinnar. Þau ætla líka að synda áheitasund um helgina til fjáröflunar. Á Samféshátíðinni koma saman unglingar frá félagsmiðstöðvum um land allt og er Þrykkjan þar ekki undanskilin. Það er ávallt mikið fjör og stemning á hátíðinni sem hefst með stórballi með vinsælustu hljómsveitum landsins og einng fer fram Söngvakeppni Samfés. Það má því reikna með að kátt verði í Höllinni þessa helgi. Þetta er árlegur viðburður í starfi Samfés sem er Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi og hafa unglingar úr Þrykkjunni ávallt farið á hátíðina. Lesa meira
 
Humarskvísa

Humarskvísan og ný heimasíða Kvennakórsins! - 15.02.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Fyrsta kvenkyns humarmerkið "humarskvísan" hefur litið dagsins ljós og er þar með enn ein skvísan gengin til liðs við Kvennakór Hornafjarðar. Eru kvennakórskonur mjög stoltar af henni. Í tilefni af Landsmóti Kvennakóra hér á Hornafirði verður hún í landsmótsbúning og merki mótsins. Ryður hún eflaust braut fleiri humarstelpna á sínum vettvangi, en öll fyrri humarmerki eða "logó" eru oftast túlkuð karlkyns. Er vel við hæfi að hún komi fram á sjónarsviðið á sama tíma og ný heimasíða Kvennakórs Hornafjarðar opnar, hornafjordur.is/kvennakor. Á nýju heimasíðunni er efnisflokkurinn Landsmót 2008 og verður þar hægt að nálgast allar upplýsingar um mótið. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica