FAS fékk bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu
Í dag fékk FAS bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu. Þetta eru allt bækur á ensku sem fjalla um Kína og menningu landins, alls um tuttugu bækur. Gjöfin kemur í kjölfarið á samskiptum sem Vilhjálmur Gíslason hefur staðið fyrir af hálfu skólans við sendiráðið. Undanfarna daga hefur verið hér í heimsókn Tao (hún fékk íslenska nafnið Sunna) frá gömlu höfuðborg Kína, Nanging. Hún ferðaðist víða um og ræddi við menn, m.a. um ferðamál og hugsanleg ferðalög Kínverja til Íslands. Í gær voru Tao og Vilhjálmur á fundi í kínverska sendiráðinu þar sem hún lýsti því sem á daga hennar hafði drifið. Þar á bæ huga menn á ferð hingað austur á næstunni til að skoða aðstæður.
Hér með er kínverska sendiráðinu þökkuð höfðingleg gjöf og Tao fyrir sitt framlag segir á vef www.fas.is.





Skrifa athugasemd