Febrúar
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði (úr myndasafni)

21.02.2008 Febrúar

27 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs

Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs rann út mánudaginn 18. febrúar og sóttu 27 um starfið. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfisráðherra. Með stjórn stofnunarinnar og umsjón með rekstri þjóðgarðsins fer sérstök stjórn skipuð af ráðherra. Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður Evrópu, verður stofnaður seint á þessu ári eða í upphafi þess næsta. Stefnt er að því að þjóðgarðurinn verði um 15.000 km² að stærð, eða um 15% af flatarmáli Íslands, og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum, m.a. vegna þess að þar eru átök elds og ísa enn í fullum gangi.

Umsækjendur eru:

  • Arinbjörn Kúld, Akureyri, neyðarvörður.
  • Björn Helgason, Höfn, framkvæmdastjóri
  • Björn M. Sigurjónsson, Reykjavík, framkvæmdastjóri
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer, Egilsstaðir, umhverfisstjóri
  • Haukur Haraldsson, Garðabær
  • Hjalti Andrason, Reykjavík, fjölmiðlafulltrúi
  • Hjálmar A. Jónsson, Reykjavík, tæknifræðingur
  • Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir, Hafnarfjörður, sérfræðingur
  • Jón Tómas Erlendsson, Kópavogur, kerfisfræðingur
  • Kristín Elfa Guðnadóttir, Reykjavík, ritstjóri
  • Orri Páll Jóhannsson, Reykjavík, ritstjóri
  • Ólafur Örn Pétursson, Seyðisfjörður, framkvæmdastjóri
  • Ragnhildur Einarsdóttir, Höfn, kennari
  • Ragnhildur Sigurðardóttir, Selfoss, sérfræðingur
  • Sigurður Ármann Þráinsson, Reykjavík, deildarstjóri
  • Sigurjón Benediktsson, Húsavík, tannlæknir
  • Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, Kópasker, þjóðgarðsvörður
  • Snorri Stefánsson, Reykjavík, sérfræðingur
  • Stefán Helgi Valsson, Reykjavík, kennari
  • Steingrímur Þorbjarnarson, Kópavogur, kennari
  • Steinn Kárason, Reykjavík, kennari
  • Úlfur Björnsson, Hveragerði, kennari
  • Þorsteinn Narfason, Kópavogur, framkvæmdastjóri
  • Þórarinn Ingi Ólafsson, Borgarnes, leiðsögumaður
  • Þórður B. Sigurðsson, Mosfellsbær, aðstoðarframkvæmdastjóri
  • Þórður H. Ólafsson, Reykjavík, framkvæmdastjóri
  • Þórhallur Pálsson, Egilsstaðir, arkitekt

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica